Innlent

Gestir Þingvalla kasti af sér vatni fyrir komu

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Skólpvatn sytrar úr þróm í þjóðgarðinum út í Þingvallavatn.
Skólpvatn sytrar úr þróm í þjóðgarðinum út í Þingvallavatn. vísir/Pjetur
Forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands segir að bregðast verði strax við álagi á Þingvallavatn vegna skólpvatns sem leitar í vatnið. Hilmar J. Malmquist forstöðumaður leggur til að gestir þjóðgarðsins verði hvattir til að létta á sér heima, á hóteli eða í skipi áður en komið sé á Þingvöll. Þetta skrifar Hilmar í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

„Á meðan ekki er búið að bæta úr ástandinu við salernin þarna, þá er það bara sniðugt fyrir ferðaþjónustuaðila að hvetja gesti sína til þessa. Það þarf að minna á að þetta er þjóðgarður og svæði sem er mjög viðkvæmt,“ segir Hilmar í samtali við Fréttablaðið. Hann segir tillöguna aðallega setta fram til að vekja fólk til vitundar.

Einar Á.E. Sæmundsen
Í grein Hilmars kemur fram að skólpvatn sytri úr þróm í þjóðgarðinum og á vatnasviði Þingvallavatns. „Vegna þess hve gropin hraun eru víða á svæðinu og lítið um jarðveg á skólpvatnið greiðan aðgang í grunnvatn sem berst fyrr en seinna í Þingvallavatn. Þá er skaðinn skeður.“

Hilmar segist ekki gera sér grein fyrir hversu raunhæf tillaga hans sé en segir þó allt hjálpa til.

„Það skiptir raunverulega máli að fólk geri sér grein fyrir hvað er að gerast þarna varðandi þessa úrgangslosun.“

Einar Á.E. Sæmundsen, fræðslufulltrúi þjóðgarðsins, segir að kerfið sem sjái um skólpið í þjóðgarðinum nái því miður ekki að afkasta því sem í það fer.

„En við keyrum seyruna sem verður eftir í burtu að mestu. Niðri við Silfru, niðri við Valhallarreitinn og á þessum viðkvæmustu svæðum erum við að keyra þetta burt.“

Einar segir að það sé í raun aðeins við salernin hjá tjaldsvæðunum og þjónustumiðstöðinni þar sem seyran er ekki keyrð í burtu. „Það er gert ráð fyrir að þessu verði ekið úr öllum salernum sem verða byggð hér úr þessu,“ segir Einar. Hann tekur fram að þessu fylgi ærinn kostnaður.

„En það væri náttúrulega yndislegt ef menn gætu haldið í sér meðan þeir fara hérna í gegn,“ segir Einar léttur um tillögu Hilmars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×