Lífið

Gerði tón­listar­mynd­band með Móra til að selja sjö manna fjöl­skyldu­bíl

Stefán Árni Pálsson skrifar
Davíð Lúther með fína auglýsingu.
Davíð Lúther með fína auglýsingu.
Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri The Color Run á Íslandi og hjá framleiðslufyrirtækinu Silent, fer heldur betur frumlega leið til að auglýsa bílinn sinn til sölu.

Davíð er með sjö manna KIA bíl til sölu og ákvað hann að auglýsa bílinn með því að búa til tónlistarmyndband með rapparanum Móra.

Móri var mjög þekktur hér á landi á sínum tíma en aðeins farið minna fyrir honum í senunni undanfarin ár. Lagið sem um ræðir er Atvinnukrimmi en búið er að breyta textanum. 

Hér að neðan má sjá þessa frumlegu auglýsingu Davíðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×