Lífið

Gerði daginn á skrifstofunni spennandi með GoPro

Samúel Karl Ólason skrifar
Skrifstofustarfsmaður í Brasilíu ákvað að gera daginn skemmtilegri með því að taka með sér GoPro myndavél og mynda vinnudaginn. Árangur dagsins birti hann á Reddit á dögunum og hefur myndbandið vakið mikla athygli þar og á Youtube. Þegar þetta er skrifaði er það komið með rúm milljón áhorf.

Á vef Business Insider segir að maðurinn vinni hjá fasteignasölu og á einhvern hátt tekst honum að gera það að setja frímerki á umslög skemmtilegt.

GoPro hefur gert fjölda myndbanda sem sýnir notendur þess við gífurlega spennandi aðstæður eins og fallhlífarstökk og klifur. Það er hressandi að skoða myndband af manni við venjulegar aðstæður.

Höfundur myndbandsins beið þó þar til flestir voru farnir heim til að taka upp nokkur atriði. Þar á meðal atriðið á klósettinu.

„Minn stærsti ótti var að ganga inn á klósettið með GoPro vél á bringunni og að rekast á einhvern við pissuskálarnar sem yrði ekki sáttur,“ skrifaði hann á Reddit. Hann hefur nokkrum sinnum tekið fram að hann hefði ekki verið borgað af GoPro til að gera myndbandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×