Lífið

Georg prins vildi ekki gefa Trudeau fimmu

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Eitthvað var prinsinn feiminn við forsætisráðherrann.
Eitthvað var prinsinn feiminn við forsætisráðherrann. Vísir/Getty
Það dreymir eflaust marga um að hitta Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, enda þykir hann með eindæmum sjarmerandi. Georg litli bretaprins er þó greinilega ekki einn af þeim. 

Þeir Trudeau og  George hittust þegar prinsinn lenti ásamt fjölskyldu sinni í Kanada en foreldrar hans, William og Catherine, eru þar í opinberri heimsókn.

Trudeau heilsaði George og reyndi að fá frá honum „high five“ og handaband. Eitthvað virtist prinsinn litli vera feiminn og hristi bara hausinn framan í forsætisráðherrann. Uppákoman er hin krúttlegasta og má sjá hana í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×