Lífið

Gekk inn á mömmu og hoppaði í höfnina

Tinni Sveinsson skrifar
Snapchat-keppnin So You Think You Can Snap!, þar sem framhaldsskólar landsins etja kappi, heldur áfram á fullri ferð.

Bjartur Jóhannes Trenton Björnsson og Björgvin Hrannar Pálsson tókust á í gær á öðrum keppnisdegi fyrir hönd Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og Menntaskólans á Tröllaskaga. Hægt er að horfa á framlag þeirra í spilaranum hér að ofan en þeir félagar áttu það sameiginlegt að leggja mikið á sig til að reyna að tryggja sigurinn.

Tuttugu framhaldsskólar hafa skráð sig til leiks í keppninni. Hver skóli teflir fram einum snappara en keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official, og fer atkvæðagreiðslan fram þar.

Tveir skólar keppa á dag og reyna snappararnir að öðlast hylli áhorfenda með fyndnum, skemmtilegum eða áhugaverðum snöppum. Áhorfendur velja svo þann sem þeim þykir betri með skjáskoti í lok dags. Sá skóli sem fær fleiri skjáskot og þar af leiðandi atkvæði kemst áfram í undanúrslit. 

Atkvæðagreiðsla fyrir fyrsta keppnisdag kláraðist í gær en þar mættust Bjarki Aron Sigurðsson úr Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi og Alexis Blackett Garcia úr MH. Alexis sigraði það einvígi fyrir hönd MH og mun því halda áfram í næstu umferð.

Alexis sigraði á fyrsta keppnisdegi fyrir hönd MH.
Framhaldsskólinn á Húsavík og Tækniskólinn mætast í dag, á þriðja keppnisdegi, og er hægt að fylgjast með einvíginu á Snapchat-reikningnum Attan_official. Við munum birta myndband af keppni þeirra hér á Vísi á morgun.

Keppnin heldur áfram næstu fjórar vikunar og mun Vísir fylgjast grannt með gangi mála.

Að keppninni stendur samfélagsmiðlaþátturinn Áttan, sem þeir Nökkvi Fjalar, Aron Ingi og Egill Ploder skipa.

Nýherji er bakhjarl keppninnar og fær sigurvegarinn nýja Lenovo tölvu í vinning.

Dagskrá keppninnar:


22. ágúst

Fjölbrautarskóli Vesturlands vs. Menntaskólinn við Hamrahlíð (sigurvegari)

23. ágúst

Fjölbrautarskóli Mosfellsbæjar vs. Menntaskólinn á Tröllaskaga

24. ágúst

Framhaldsskólinn á Húsavík vs. Tækniskólinn

25. ágúst

Menntaskólinn á Akureyri vs. Fjölbraut við Ármúla

26. ágúst

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum vs. Menntaskólinn í Kópavogi

29. ágúst

Fjölbraut í Breiðholti vs. Menntaskólinn við Sund

30. ágúst

Kvennaskólinn vs. Verzlunarskóli Íslands

31. ágúst

Fjölbrautarskóli Snæfellinga vs. Fjölbraut í Garðabæ

1. september

Menntaskólinn í Reykjavík vs. Verkmenntaskólinn á Akureyri

2. september

Fjölbrautarskóli Suðurlands vs. Flensborgarskólinn

Sigurvegarinn hlýtur Lenovo tölvu frá Nýherja.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×