Innlent

Gasmengun norður og austur af eldstöðinni í nótt

Atli Ísleifsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Veðurstofan býst við gasmengun norður og austur af eldstöðinni í Holuhrauni, á svæðinu frá Skjálfandaflóa og austur á Djúpavog í kvöld og í nótt.

Í spá Veðurstofunnar segir að á morgun þriðjudag sé útlit fyrir gasmengun til norður og norðaustur af gosstöðvunum, á svæðinu frá Tjörnesi og austur í Mjóafjörð.

Vindur er hægur báða dagana og eykur það líkur á hærri styrk gasmengunar á stöku stað.

Blágræna svæðið sýnir hvar líkur eru á mengun frá eldgosinu í dag.Vísir/Veðurstofan
Bleika svæðið sýnir hvar líkur eru á mengun frá eldgosinu á morgun, þriðjudag.Vísir/Veðurstofan



Fleiri fréttir

Sjá meira


×