Íslenski boltinn

Garðar manna mikilvægastur á Skaganum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Garðar Gunnlaugsson.
Garðar Gunnlaugsson. vísir/andri marinó
Garðar Gunnlaugsson, framherji ÍA, nældi sér í bronsskóinn á lokadegi Pepsi-deildarinnar með því að skora eitt mark í 2-1 sigri Skagamanna gegn ÍBV. Garðar skoraði í heildina níu mörk í 17 leikjum og hirti bronsskóinn af Steven Lennon, FH, á færri leikjum spiluðum.

Garðar hefur tvisvar áður þurfti að sætta sig við fjórða sætið en fékk um helgina sinn fyrsta markaskó. Þetta er jafnframt fyrsti markaskórinn sem Skagamenn fá síðan Hjörtur Hjartarson varð markakóngur deildarinnar Íslandsmeistaraárið 2001.

Skagamenn gerðu vel í ár og enduðu mótið með 29 stig sem nýliðar. Takmarki þeirra var náð að halda sér í deildinni en liðið sýndi mikinn karakter allt mótið og var til að mynda það lið sem vann flest stigin eftir að lenda undir.

Það er á engan hallað í Skagaliðinu þegar fullyrt er að Garðar Gunnlaugsson er mikilvægasti leikmaður liðsins. Væri kosinn mikilvægasti leikmaður deildarinnar væri hann í harðri baráttu um þann titil.

Garðar var mikið meiddur í fyrri umferðinni og skoraði þar tvö mörk sem í heildina tryggðu liðinu fjögur stig. Sigurmark gegn Leikni og jöfnunarmark gegn Víkingi. Hann skoraði svo sjö mörk í seinni umferðinni og halaði inn fimm stigum til viðbótar upp á sitt einsdæmi með jöfnunarmörkum gegn Stjörnunni, Víkingi aftur og Fjölni. Í heildina tryggði Garðar Skagamönnum sjö stig af 29 eða tæpan fjórðung.

Garðar skoraði í átta leikjum og þar af aðeins einum tapleik. Nánast öll mörkin voru mikilvæg og áttu þátt í að safna stigum fyrir Skagaliðið. Það sést líka á stigasöfnun ÍA með og án Garðars hversu mikilvægur hann er. ÍA fékk fimm stig í fimm leikjum án hans en 24 stig í 17 leikjum með hann í liðinu. Það er kannski eins gott fyrir Skagamenn að Garðar er samningsbundinn út næsta tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×