Íslenski boltinn

Garðar fékk gullskóinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Samsett mynd/Vísir
Garðar Gunnlaugsson varð markakóngur Pepsi-deildar karla og fær því gullskó Adidas.

Garðar skoraði 14 mörk fyrir ÍA sem tapaði í dag fyrir Val, 1-0. Valsarinn Kristinn Freyr Sigurðsson fékk silfurskóinn en hann endaði tímabilið með þrettán mörk. Hvorugur skoraði í leiknum í dag.

Hrvoje Tokic, Víkingi Ólafsvík, skoraði mark sinna manna í 4-1 tapi fyrir Stjörnunni og skaust þar með upp fyrir Martin Lund Pedersen, Fjölni.

Báðir hafa skorað níu mörk í sumar en Tokic hefur komið við sögu í færri leikjum og fær því bronsskóinn.

Markahæstu leikmenn:

1. Garðar Gunnlaugsson, ÍA 14 mörk

2. Kristinn Freyr Sigurðsson, Val 13 mörk

3. Hrvoje Tokic, Víkingi Ó 9 mörk

4. Martin Lund Pedersen, Fjölni 9 mörk


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×