Innlent

Ganga 765 kílómetra með tveggja ára barn

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Arnhildur Lilý með Braga í kerrunni við upphaf ferðar.
Arnhildur Lilý með Braga í kerrunni við upphaf ferðar. Myndir/Arnar Sigurðsson
„Við höldum hans takti og rútínu. Það er eina leiðin til að gera þetta,“ segir Arnhildur Lilý Karlsdóttir þegar hún er spurð hvernig það sé að vera allan daginn á göngu með tveggja ára barn.

Hún, maður hennar Arnar Sigurðsson og litli göngugarpurinn Bragi eru þessa dagana á göngu á Spáni á svokallaðri frönsku leið um Jakobsveg.

Bragi situr mest í sérútbúinni fjallakerru og hraðast er farið um þegar hann tekur lúrinn sinn yfir daginn. Kerran kemst þó ekki yfir hvað sem er.

„Við þurfum stundum að halda á kerrunni þegar stórt grjót og drulla eru á veginum. Við höfum alveg lent í nokkrum svaðilförum,“ segir Arnhildur en fullyrðir að það sé ekki svo mikið mál að vera með barn á þessu ferðalagi.

Þegar Bragi verður þreyttur á að sitja í kerrunni fær hann að ganga sjálfur og svo er stoppað á leikvöllum af og til. „Við förum í alls kyns leiki, skoðum umhverfið og dýr sem við sjáum. Svo er mikið sungið,“ segir Arnhildur.

Kerran er sérútbúin fjallakerra en hún kemst þó ekki yfir allt og þá þurfa Arnar og Arnhildur að halda á kerrunni á milli sín.Mynd/Arnar
Fjölskyldan gistir í húsi á hverju kvöldi og fer af stað á milli sjö og átta á morgnana. Á leiðinni eru fjölmörg þorp og því alltaf hægt að borða á veitingahúsum.

„Við erum að labba svona 20 til 30 kílómetra á dag. Við hittum einmitt fólk í dag sem var samferða okkur fyrstu daga göngunnar og það viðurkenndi að það hefði ekki haldið að við kæmumst svona langt.“

Leiðin er ein þekktasta pílagrímsleið í Evrópu og er 764 kílómetra löng. Því er ekki algengt að sjá börn á göngustígunum. „Þetta er mest allt eldra fólk sem finnst æðislegt að hitta Braga og er mikið að brosa til hans eða bjóða honum sleikjó.“

Fjölskyldan hóf gönguna 29. apríl og mun ljúka henni 1. júní þegar hún kemur til borgarinnar Santiago de Compostela.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 24. maí

Arnar, Bragi og Arnhildur eru búin með 515 kílómetra af leiðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×