Innlent

Gáleysi skipstjóra sigldi Skrúði í strand

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skrúður sigldi með farþega út í Viðey. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Skrúður sigldi með farþega út í Viðey. Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/vilhelm
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur komist að þeirri niðurstöðu að „óaðgæsla við stjórn skipsins“ hafi orðið til þess að Viðeyjarferjan Skrúður strandaði við Skarfabakka í september í fyrra. Þá var skipstjóri ekki lögskráður á bátinn auk þess sem farþegar voru á stjórnpalli sem truflaði siglinguna.

Í skýrslu rannsóknarnefndar kemur fram að þann 15. september 2017 hafi Skrúður verið á siglingu með farþega frá Viðey að Skarfabakka í Reykjavíkurhöfn. Þegar verið var að losa landfestar í Viðey klemmdi hásetinn vísifingur vinstri handar milli tógsins og polla. Eftir að bátinn var farinn frá bryggju fór skipstjórinn að sinna meiðslum hásetans. Um kl. 23:00, þegar báturinn var farinn að nálgast Skarfabakka, sigldi hann með stefnið upp í grjótgarðinn vestan við bryggjustæðið.

Við rannsókn á atvikinu kom fram að áðurnefndur háseti hafi orðið fyrir „ónæði og truflun frá farþega“ við losun landfesta í Viðey. Það hafi haft þær afleiðingar að hann klemmdi sig. Skipstjórinn setti þá sjálfstýringu á bátinn þegar stefnan var tekin á Skarfabakka og fór að sinna hásetanum. Þó hefur komið fram að báturinn hafi verið aftur kominn á handstýringu þegar hann nálgaðist grjótgarðinn við Skarðabakka.

Þá virðast farþegar bátsins hafa verið á stjórnpalli sem truflaði siglinguna og síðan björgunina. Stjórntök bátsins voru auk þess í opnu rými sem farþegar höfðu greiðan aðgang að.

Eftir að báturinn sigldi í strandi tók skipstjórinn þá ákvörðun að rýma bátinn og láta þá farþega sem treystu sér fara í land upp á grjótgarðinn. Fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar að hræðsla hafi skapast meðal farþega og kvörtuðu þeir undan skort á upplýsingagjöf og stjórnun.

Þá kemur einnig fram að skipstjórinn var ekki lögskráður á bátinn. Er álit nefndarinnar að orsök strandsins sé „óaðgæsla við stjórn skipsins“ auk þess sem lögskráning hafi ekki verið í lagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×