Innlent

Gagnrýnir forsetann harðlega: Reyndi vísvitandi að spilla sambandinu við Bandaríkin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eiður Svanberg Guðnason og Ólafur Ragnar Grímsson.
Eiður Svanberg Guðnason og Ólafur Ragnar Grímsson.
„Eru störf og stefna stjórnmálamannsins Ólafs Ragnars Grímssonar eitthvað, sem allir eiga að gleyma? Ég er ekki þeirrar skoðunar. Þannig á ekki að skrifa söguna.“

Þetta ritar fyrrverandi ráðherrann og sendiherrann Eiður Svanberg Guðnason í gagnrýnum pistli í Fréttablaðinu í dag. Fer Eiður hörðum orðum um hegðun Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta Íslands sem gerði „allt sem í hans valdi stóð til að spilla og skaða samvinnu og samskipti Íslands og Bandaríkjanna.“

Tilefni pistils Eiðs er að forsetinn var á dögunum heiðraður af American Scandinavian Foundation (samtökum fólks af norrænum uppruna í Bandaríkjunum) fyrir framlag hans til samvinnu Íslands við Bandaríkin. Er greinilegt á Eiði að honum finnst Ólafur ekki hafa átt viðurkenninguna skilið. Hann hafi verið harður andstæðingur varnarsamstarfsins, eins af hornsteinum íslenskrar utanríkisstefnu, fullyrt að Bandaríkjamenn geymdu kjarnavopn á Íslandi sem reynst hafi rangt og aldrei beðist afsökunar á því svo Eiði reki minni til.

„Ólafur Ragnar Grímsson barðist gegn byggingu nýrrar flugstöðvar við Keflavíkurflugvöll vegna þess að hann leit á flugstöðina sem einhverskonar hernaðarmannvirki í þágu Bandaríkjanna. Illu heillu tókst honum að fá flugstöðina minnkaða frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir,“ skrifar Eiður. Auk þess hafi forsetinn reynt að leggja niður Ameríkuflug Flugleiða.

„Steingrímur Hermannsson, þá samgönguráðherra, kom í veg fyrir að þau áform hans næðu fram að ganga. Þessa sögu kunna þeir vel, sem störfuðu að flugmálum á þeim tíma.“

Lýkur pistli Eiðs á að rifja upp þegar Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, fékk tilkynningu um að henni yrði ekki veitt fálkaorðan árið 2009. Var hún á leið sinni á Bessastaði að veita viðurkenningunni viðtöku þegar forsetinn hringdi í hana og sagði um allsherjar misskilning að ræða.

„Seinna gaf hann í skyn að hún verðskuldaði ekki fálkaorðuna. Eftir þessa einstæðu uppákomu varð nokkur bið á því að Bandaríkin skipuðu nýjan sendiherra á Íslandi. Þótt sumum kunni að finnast það ótrúlegt þá skaðaði þessi gjörð forsetans samskipti Íslands og Bandaríkjanna meira en flest annað í þeirri sögu allri.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×