Lífið

Gaf stjörnupar saman

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikarinn og spéfuglinn Jonah Hill gaf tónlistarmanninn Adam Levine og fyrirsætuna Behati Prinsloo saman um helgina en þau gengu í það heilaga í Los Cabos í Mexíkó á laugardaginn.

Jonah og Adam hafa verið vinir afar lengi og segir heimildarmaður tímaritsins Us Weekly að Jonah hafi slegið á létta strengi við athöfnina.

„Adam vissi að hann væri í góðum höndum með því að biðja Jonah um að gefa þau saman. Hann og Behati stefndu að því að gera þetta skemmtilegasta brúðkaup sem nokkur hefði upplifað og þeim tókst það,“ segir heimildarmenn tímaritsins.

Aðrar stjörnur sem voru gestir í brúðkaupinu voru leikarinn Robert Downey Jr., ofurfyrirsætan Coco Rocha og leikarinn Jason Segel.

Adam og Behati.vísir/getty

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×