Lífið

Gaf eiginhandaráritanir í Kringlunni

Pattra Sriyanonge
Pattra Sriyanonge
Einhverjir ráku upp stór augu við lestur auglýsingar í Fréttablaðinu um helgina, þar sem greint var frá því að tískubloggarinn Pattra Sriyanonge ætlaði að veita aðdáendum eiginhandaráritanir fyrir utan verslun Vero Moda í Kringlunni á laugardag.

Fjöldi fólks mætti og fékk eiginhandaráritun frá Pöttru, sem er í stuttri heimsókn á Íslandi. Heimsóknin í Kringluna reyndist svo vera hluti af gæsun Pöttru, en hún og fótboltakappinn Theodór Elmar Bjarnason ætla að ganga í það heilaga á strönd í Taílandi í desember. Þau eru búsett í Danmörku þar sem Elmar spilar fyrir Randers FC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×