Innlent

Gæti orðið hlýjasta árið frá upphafi mælinga

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Veður hefur verið gott það sem af er ári. Trausti Jónsson fylgist vel með gangi mála.
Veður hefur verið gott það sem af er ári. Trausti Jónsson fylgist vel með gangi mála. Vísir/Valli/GVA
Trausti Jónsson veðurfræðingur reiknar með því að nóvember verði sá hlýjasti um langt skeið. Von er á áframhaldandi hlýindum miðað við árstíma að því er segir í nýjustu bloggfærslu Trausta sem rituð var í nótt. Árið 2014 gæti orðið það hlýjasta á landinu frá því mælingar hófust.

„Einhvern veginn hefði maður haldið að næsta lægð stefndi beint í átt til landsins ofan í útsynninginn í dag (þriðjudag 25. nóvember). Reyndar var þetta heldur aumur útsynningur en sýndi þó mjög fallega klakka og stöku él og að sögn fáeinar þrumur líka,“ segir Trausti.

Veðurfræðingurinn notfærir sér spákort Evrópureiknistöðvarinnar fyrir Norður-Atlantshaf. Þar kemur fram að landið sé í mjög hægum suðlægum vindi.

„Þarna má sjá lægðina sem minnst var á í upphafi. Hún gerir sig líklega, finnst manni, til að fara til austurs ekki langt fyrir sunnan land. Nema hvað, hún á að taka strikið beint suðaustur til Spánar.“

Um leið og það gerist segir Trausti að lægðin beini hingað hlýju lofti úr suðaustri. Þar með aukist enn líkur á að nóvember verði sá hlýjasti um langt skeið þótt líklega verði ekki sett Íslandsmet.

„Í augnablikinu er meðalhiti 5,7 stig í Reykjavík, var 6,0 sömu daga 1956. Sá mánuður hrapaði niður í 5,0 á síðasta sprettinum. En fyrsta sætið er varla innan seilingar. Sömu dagar í nóvember 1945 eiga meðalhitann 7,1 stig en hann endaði stigi neðar.“

Trausti er spenntur fyrir hitauppgjöri ársins í heild sinni.

„Við eigum nefnilega töluverða möguleika á hlýjasta ári frá upphafi mælinga. En desember er eftir. Við munum vel vonbrigðin 2011 þegar fyrsti kaldi vetrarmánuðurinn í 9 ár reið yfir, fyrirvaralaust. Héldu þá sumir að hlýskeiðinu væri lokið en síðan eru liðin 3 ár og við erum enn ekki búin að yfirgefa það nema síður sé.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×