Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Skotgrafapólitík“ í umsögnum um auðlindaákvæði veldur vonbrigðum Sumar umsagnir sem borist hafa um frumvarp um breytingar á stjórnarskrá valda Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra vonbrigðum. 18.3.2021 07:42
Ráðast í annað útboð þannig að Gosa og Drottningu verði skipt út Til stendur að hefja innkaupaferli á tveimur nýjum síðalyftum fyrir Bláfjöllum. Síðar verður svo hafinn undirbúningur að kaupum á fleiri lyftum fyrir Bláfjöll og Skálafell, auk þess að snjóframleiðslu verði komið upp. 18.3.2021 07:37
Helga Sigríður skipuð rektor MS Helga Sigríður Þórsdóttir hefur verið skipuð rektor Menntaskólans við Sund. Hún hefur verið konrektors skólans frá árinu 2017 en áður starfaði hún sem deildarstjóri og aðstoðardeildarstjóri við leikskóla í Noregi. 18.3.2021 07:17
Tólf bítast um sjö sæti í stjórn Varðar Tólf gefa kost á sér til stjórnar Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Jón Karl Ólafsson gefur einn kost á sér til formanns Varðar og verður hann því sjálfkjörinn á aðalfundi fulltrúaráðsins sem fram fer klukkan 11 í dag. 18.3.2021 07:09
Nóttin sú rólegasta frá upphafi skjálftahrinu Verulega hefur dregið úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga en nýliðin nótt var sú rólegasta frá upphafi skjálftahrinunnar 24. febrúar. 18.3.2021 06:42
Börnin verða flutt úr Fossvogsskóla Stefnt er að því að finna nýtt húsnæði undir kennslu fyrir nemendur í Fossvogsskóla frá og með mánudegi. Börnin munu ekki þurfa að mæta aftur í húsnæði skólans og er nú unnið að skipulagi. 17.3.2021 22:36
Reyna að brjóta upp á fábreyttan hversdagsleikann Strangar sóttvarnaraðgerðir eru enn í gildi í Danmörku þótt nokkur skref hafi verið stigin til afléttingar. Íslendingar í Kaupmannahöfn sakna þess meðal annars hvað helst að komast á barinn, á veitingastaði og vona að landamæri verði opnuð sem fyrst. 17.3.2021 22:03
Handtekinn grunaður um brot gegn nálgunarbanni og eignaspjöll Maður var í dag handtekinn grunaður um að hafa brotið gegn nálgunarbanni og framið eignaspjöll á bíl móður drengs sem hefur sætt hótunum frá manninum undanfarna mánuði. Maðurinn verður yfirheyrður á morgun. 17.3.2021 21:05
Foreldrar vilja framkvæmdir í Fossvogsskóla: „Börnin verða að fá að njóta vafans þegar kemur að heilsufari“ Ósáttir foreldrar barna í Fossvogsskóla funduðu í dag með fulltrúum Reykjavíkurborgar vegna myglu í skólanum. Þykir mörgum sinnuleysi einkenna viðbrögð þeirra sem ráða og hafa 250 foreldrar skrifað undir áskorun um að skólanum verði lokað og framkvæmdir til þess að uppræta mygluna hefjist þegar í stað. 17.3.2021 21:00
Hinn ákærði metinn ósakhæfur Marek Moszczynski, karlmaður á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir manndráp og íkveikju á Bræðraborgarstíg síðasta sumar, er metinn ósakhæfur samkvæmt yfirmati geðlækna. 17.3.2021 20:49
Hæsta íbúðarhúsið á Suðurlandi í byggingu á Selfossi Hæsta íbúðarhúsið á Suðurlandi er nú að rísa en það er sex hæða blokk upp á tæpa nítján metra á Selfossi. 35 íbúðir verða í blokkinni en nú þegar er búið að taka 26 íbúðir frá þrátt fyrir að engin íbúð hafi verið auglýst til sölu enn þá. 17.3.2021 20:21
Ráðuneytið óskar eftir frekari upplýsingum frá Landspítala og afhendir ekki svörin þangað til „Ráðuneytið er að yfirfara bréf Landspítalans og telur ljóst að óska þurfi eftir frekari upplýsingar frá spítalanum varðandi málið. Ráðuneytið mun á næstu dögum óska eftir viðbótarupplýsingum frá Landspítala um þessi efni og mun ekki afhenda umrætt bréf fyrr en nánari upplýsingar liggja fyrir.“ 17.3.2021 20:04
Varð 3,5 milljónum króna ríkari eftir ferð á bensínstöð Einn heppinn miðahafi vann rúmar 3,5 milljónir í Víkingalottó í kvöld þegar hann fékk hinn alíslenska þriðja vinning. Vinningsmiðinn var keyptur í N1 á Ártúnshöfða í Reykavík. 17.3.2021 19:29
Nýjar landamærareglur á Íslandi einsdæmi í Evrópu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur til að gefið verði út samevrópskt rafrænt grænt vottorð fyrir alla íbúa evrópska efnahagssvæðisins sem staðfesti stöðu þeirra gagnvart COVID-19. Nýjar reglur varðandi vottorð ferðamanna utan Schengens sem taka gildi á morgun eru einsdæmi innan Evrópska efnahagssvæðisins. 17.3.2021 19:21
Kæra rekstur spilakassa til lögreglu verði starfseminni ekki hætt Happdrætti Háskóla Íslands hefur verið veittur nokkurra daga frestur til þess að hætta rekstri spilakassa, annars verði starfsemin kærð til lögreglu. Formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn segir að fólk sem hafi jafnvel misst aleiguna vegna meintrar ólöglegrar starfsemi muni jafnframt krefjast bóta. 17.3.2021 18:45
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur til að gefið verði út samevrópskt rafrænt grænt vottorð fyrir alla íbúa evrópska efnahagssvæðisins sem staðfesti annað hvort mótefni við kórónuveirunni eða bólusetningu. 17.3.2021 18:01
Almannavarnir sendu óvart SMS-skilaboð til íbúa á höfuðborgarsvæðinu SMS-skilaboð frá almannavörnum sem voru ætluð vegfarendum í námunda við Keili og Fagradalsfjall dreifðust um of stórt svæði og voru meðal annars send í símtæki í Grindavík og á höfuðborgarsvæðinu. Í skilaboðunum var ítrekað að enn væri varhugavert að vera nálægt Keili og Fagradalsfjalli. 17.3.2021 17:58
Les tuttugu stiga hita af mælinum í Hallormsstað Íbúi í Múlaþingi vekur athygli á því að hitamælirinn í garði hans sýni tuttugu gráður í dag. Veðurstofan spáði töluverðum hita á Austurlandi í dag og sú spá hefur ræst og gott betur. 17.3.2021 16:30
Mummi reynir að koma vitinu fyrir páfa Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ritað hans heilagleika, Frans páfa í Vatíkaninu, opið bréf þar sem hann fer vinsamlegast fram á að hann dragi til baka ákvörðun um að samband samkynhneigðra para njóti ekki blessunar kaþólsku kirkjunnar. 17.3.2021 15:51
Guðjón hættir á þingi Guðjón S. Brjánsson þingmaður Samfylkingarinnar mun ekki gefa kost á sér í flokksvali Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi sem haldið verður nú í mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Guðjóni sem send var fjölmiðlum nú síðdegis. 17.3.2021 15:51
Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna Rauðagerðismorðsins Karlmaður hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald vegna aðildar að morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn. Gæsluvarðhald yfir tveimur öðrum átti að renna út í dag. 17.3.2021 15:02
Rósa Björk: Ætlum við að klúðra stöðunni? Svandís Svavarsdóttir segir löngu tímabært að Íslendingar fái upplýsingar um afhendingaráætlun bóluefna fyrir næsta ársfjórðung. Gert er ráð fyrir að fjörutíu og þrjú þúsund manns verði bólusettir í lok mánaðarins. 17.3.2021 14:48
Einn lagður inn með Covid í nótt Einn var lagður inn á Landspítala vegna Covid-sýkingar í nótt. Innlögnin er sú fyrsta vegna Covid í nokkrar vikur, að sögn yfirlæknis. Enginn lá inni á spítalanum með Covid í gær. 17.3.2021 14:47
Líklegast að skaðvaldurinn hafi verið rekaviðardrumbur Betur fór en á horfðist þegar leki kom að farþegabátnum Bjarma á fimmta tímanum í gær. Tökulið breska ríkisútvarpsins BBC, sem var í bátnum, var híft um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar í varúðarskyni í gærkvöldi. Eigandi bátsins segir engan bilbug á hópnum en hann fékk engu að síður áfallahjálp. Talið er að báturinn hafi keyrt á rekaviðardrumb. 17.3.2021 14:25
Starfsemi Stjórnstöðvar ferðamála lokið Starfsemi Stjórnstöðvar ferðamála er nú lokið er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, stýrði lokafundi hennar í gær. Stjórnstöðin hefur verið starfrækt frá árinu 2015 og var ætlað að starfs í fimm ár. 17.3.2021 14:11
Í stórum dráttum sáttur við niðurstöðuna og áfrýjar ekki Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, ætlar ekki að áfrýja niðurstöðu í meiðyrðamáli sem hann höfðaði gegn dóttur sinni Aldísi Schram, fjölmiðlamanninum Sigmari Guðmundssyni og Ríkisútvarpinu til réttargæslu. 17.3.2021 13:42
Vanmetinn „hálftími hálfvitanna“ Umræður um störf þingsins fara nú fram einu sinni í viku en ekki tvisvar eftir að skipulagi þingvikunnar var breytt í tilraunaskyni. Þingmaður Pírata gerir athugasemd við það og segir umræðuna dýrmæta fyrir lýðræðið. 17.3.2021 13:27
Eftirlit tekið upp á innri landamærum Íslands Eftirlit verður tekið upp á innri landamærum Íslands eftir að fólki utan Schengen svæðisins sem hefur verið bólusett gegn Covid 19 verður leyft að koma til landsins. Yfirlögregluþjónn segir þetta auðvelda eftirlit með þeim sem koma til Íslands og frávísun þeirra sem ekki megi koma hingað. 17.3.2021 11:48
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við yfirlögregluþjóninn á Keflavíkurflugvelli sem býr sig nú undir að taka við auknum fjölda farþega frá ríkjum utan Schengen eftir að ríkisstjórnin heimilaði komu þeirra sem þegar hafa verið bólusettir fyrir kórónuveirunni. 17.3.2021 11:38
Landspítalinn var búinn að gefa jákvætt svar við að taka við leghálssýnarannsóknum Ákvörðun um að leita til erlendra aðila til að taka við rannsóknum á leghálssýnum var ekki tekinn fyrr en eftir miðjan nóvember síðastliðinn. Þá lá fyrir að Landspítalinn taldi sig geta tekið við rannsóknunum en heilbrigðisráðuneytið mat kostnaðinn of mikinn. 17.3.2021 11:20
Lögregla fór á svig við lög á Facebook Móttaka lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á upplýsingum í gegnum Facebook samrýmist ekki lögum um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi. Þetta er niðurstaða Persónuverndar. 17.3.2021 11:07
Enginn greindist með Covid innanlands Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir greindust á landamærum, þar af tveir með virkt smit en beðið er eftir niðurstöðu úr mótefnamælingu hjá hinum tveimur. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is. 17.3.2021 10:50
„Upplifi mig mjög svo varnarlausa og hvergi örugga“ Svala Lind Ægisdóttir segist upplifa sig varnarlausa og hvergi óhulta. Það sama gildi um son hennar og fjölskyldumeðlimi sem sæti hótunum og eignaspjöllum af hendi karlmanns. 17.3.2021 10:35
Átta þúsund viðbótarskammtar væntanlegir frá Pfizer Ísland fær átta þúsund viðbótarskammta af bóluefni lyfjaframleiðandans Pfizer á öðrum ársfjórðungi frá því sem áður var gert ráð fyrir, samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu. 17.3.2021 10:33
Meintur svindlari í Vesturbænum var ósvikinn björgunarsveitarmaður Svo virðist sem fréttir af meintum svindlara, dulbúnum sem björgunarsveitarmaður í þeim tilgangi að féfletta fólk í gærkvöldi, séu stórlega ýktar. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að þarna hafi verið ósvikinn björgunarsveitarmaður á ferðinni í hefðbundinni styrkjaumleitan í Vesturbænum. 17.3.2021 09:25
„Vonandi fáum við einhverja viðvörun“ BBC fjallar á vef sínum í dag um jarðskjálftahrinuna sem verið hefur viðvarandi á Reykjanesskaga síðastliðnar þrjár vikur. „Ísland skelfur vegna meira en 50 þúsund jarðskjálfta á þremur vikum“ er yfirskrift umfjöllunarinnar. 17.3.2021 09:13
Stöðva tímabundið innlagnir nýrra sjúklinga í endurhæfingu Reykjalundur hefur stöðvað tímabundið innlagnir nýrra sjúklinga í endurhæfingu vegna eftirkasta Covid-19. 17.3.2021 08:01
Tökumenn BBC um borð í vélarvana bát á Hornströndum Farþegar um borð í farþegabáti sem lak og varð vélarvana á fimmta tímanum norður af Hornströndum voru hluti af tökuliði á vegum breska ríkisútvarpsins BBC. 16.3.2021 20:54
Hefur stundað sund daglega í 80 ár Hann varð 86 ára nýlega og þann sama dag hélt hann upp á 80 ára sundafmælið sitt. Hér erum við að tala um sundgarp á Selfossi, sem syndir hálfan kílómetra alla daga vikunnar og hefur stundað sund daglega frá því að hann var sex ára gamall. 16.3.2021 20:29
Norðmenn og Danir þyrftu ekki að fara í sóttkví tæki litakóðakerfi gildi í dag Heilbrigðisráðherra staðfestir að litakóðakerfi verði tekið upp á landamærum 1. maí. Þá fá Evrópulönd grænan, gulan eða rauðan lit eftir fjölda smita í landinu. 16.3.2021 20:00
Mikill áhugi á Íslandi og markaðsherferðir hafnar Forstjóri Icelandair segir afar jákvætt að farþegar utan Schengen fái að koma til landsins með gild bólusetningar-eða mótefnavottorð. Mikilvægustu markaðir félagsins séu þar. Íslandsstofa hefur þegar hafið markaðssátak í Bretlandi og skynjar mikinn áhuga á Íslandi. 16.3.2021 20:00
Landspítalinn þurfti að farga rúmlega hundrað skömmtum af bóluefni Landspítalinn þurfti að farga rúmlega hundrað skömmtum af bóluefni AstraZeneca við kórónuveirunni, eftir að tekin var ákvörðun um að stöðva tímabundið bólusetningu með bóluefninu í síðustu viku. Búið var að blanda skammtana og bólusetning á starfsmönnum spítalans hafin þann daginn. 16.3.2021 19:50
Krafði ríkisstjórnina um kröftugri aðgerðir fyrir atvinnulausa Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld þurfa að hreyfa sig hraðar og koma þeim sem hefðu verið atvinnulausir lengi til mun meiri aðstoðar en hingað til. Félagsmálaráðherra segir allar aðgerðir stjórnvalda miða við þetta og sú nýjasta sé sú viðamesta til sköpunar starfa. 16.3.2021 19:20
Auðveldara fyrir kvikuna að ferðast lárétt heldur en lóðrétt enn sem komið er Skýr merki eru á jarðskorpunni um jarðskjálftann við Grindavík á sunnudag. Jarðeðlisfræðingur telur kviku vera á þónokkurri hreyfingu í kvikuganginum og færist nú aftur nær Keili. 16.3.2021 18:45
Líklegasta gossvæðið færst frá Nátthaga að Fagradalsfjalli Líklegasta gossvæðið á Reykjanesskaga hefur færst aftur frá Nátthaga norðaustur eftir kvikuganginum að norðausturhluta Fagradalsfjalls. Þetta er niðurstaða vísindaráðs almannavarna og byggist á greiningu á skjálftavirkni síðasta sólarhringinn, úrvinnslu úr GPS mælingum og gervihnattamyndum. 16.3.2021 18:16