Sport

Á­kærður fyrir að slá barn sitt með blautu hand­klæði

Sindri Sverrisson skrifar
Gjert Ingebrigtsen er pabbi eins allra besta hlaupara heims í dag, Jakobs Ingebrigtsen, sem síðasta haust greindi frá ofbeldi föður síns.
Gjert Ingebrigtsen er pabbi eins allra besta hlaupara heims í dag, Jakobs Ingebrigtsen, sem síðasta haust greindi frá ofbeldi föður síns. EPA/Getty

Á meðan að norski hlauparinn Jakob Ingebrigtsen býr sig undir að verja ólympíumeistaratitil sinn í 1.500 metra hlaupi í sumar hefur pabbi hans, Gjert Ingebrigtsen, verið ákærður fyrir ofbeldi gegn einu barna sinna.

Saksóknari greindi frá þessu í dag en lögregla hóf rannsókn eftir að hlaupabræðurnir þrír; Jakob, Henrik og Filip, stigu fram í október síðastliðnum og sökuðu föður sinn um heimilisofbeldi. Pabbinn var auk þess áður þjálfari þeirra.

Ofbeldi gegn yngra systkini

„Við ólumst upp við mjög agressívan og stjórnsaman föður, sem notaði líkamlegt ofbeldi og hótanir í uppeldi okkar. Við finnum enn fyrir óþægindum og þeim ótta sem við höfum fundið frá barnæsku,“ skrifuðu bræðurnir í grein í norska miðlinum VG í október.

Samkvæmt frétt VG í dag er Gjert Ingebrigtsen hins vegar ekki ákærður fyrir ofbeldi gegn bræðrunum heldur fyrir ofbeldi gegn yngra systkini þeirra. Hann á meðal annars að hafa notað blautt handklæði í því ofbeldi og á það að hafa gerst í janúar 2022, sem leiddi til þess að bræðurnir þrír slitu öllu samstarfi við pabba sinn.

Pabbanum mun vera gefið að sök að hafa beitt ofbeldi, bæði líkamlegu og andlegu, yfir fjögurra ára tímabil, frá 2018 til 2022.

Sex mál látin niður falla

Sex önnur mál voru látin niður falla, þar af fimm vegna skorts á sönnunargögnum og eitt vegna þess að of langur tími var liðinn frá meintu broti.

Lögmaður Gjert Ingebrigtsen sagði við AFP í dag að hann neitaði allri sök.

Af hlaupabræðrunum þremur er Jakob yngstur, 23 ára, og sigursælastur en hann hefur orðið heimsmeistari í 5.000 metra hlaupi í tvígang og unnið ólympíugull í 1.500 metra hlaupi. Henrik, 33 ára, og Filip, 31 árs, unnu Evrópumeistaratitla í 1.500 metra hlaupi árin 2012 og 2016.

Eftir að synirnir ráku Gjert tók hann að sér þjálfun annars hlaupara, Narve Gilje Nordas, en norska ólympíunefndin hefur tilkynnt að Gjert muni ekki fá aðgang að Ólympíuleikunum í sumar, rétt eins og á HM í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×