Lífið

Ein­stakar ljós­myndir úr Sund­höll Reykja­víkur í gegnum tíðina

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Manstu eftir því þegar afgreiðsla Sundhallarinnar leit svona út?
Manstu eftir því þegar afgreiðsla Sundhallarinnar leit svona út? Sundhöll Reykjavíkur

Sundhöll Reykjavíkur við Barónsstíg á sér langa sögu sem nær aftur til fjórða áratugs seinustu aldar. Um áratugaskeið var Sundhöllin helsta kennslu- og æfingalaug Reykjavíkur og í gegnum tíðina hefur laugin eignast óteljandi fastakúnna sem þangað koma til að fá sér sundsprett, rækta líkama og sál og ræða þjóðmálin til mergjar í heita pottinum.

Meðfylgjandi myndir fann Hlynur Steinsson starfsmaður Sundhallarinnar fyrir tilviljun en þær eru teknar á árunum 1975 til 2000 og spanna því rúman aldarfjórðung í s0gu byggingarinnar. 

Myndirnar voru teknar af starfsfólki sundlaugarinnar á tækifærisdögum, afmælisdögum sundlaugarinnar og við önnur tilefni, eins og sundleikfimi og matarpásur.

Sundhöllin hefur tekið töluverðum breytingum í gegnum tíðina eins og sjá má.Sundhöll Reykjavíkur

„Ég er að vinna þarna í hlutastafi og var að grúska í kjallaranum og rakst á þessi albúm með fullt af ljósmyndum og póstkortum,“ segir Hlynur í samtali við Vísi.

Börn úr Austurbæjarskólanum í skólasundi.Sundhöll Reykjavíkur

„Og það virðist sem að þær hafi hálfpartinn gleymst, það voru komnar smá rakaskemmdir í þetta og ryk. Þannig að mér fannst réttast að taka þetta með heim og skoða þetta betur og skanna inn til að þetta myndi ekki glatast. Ég hafði svo samband við Ljósmyndasafn Reykjavíkur til að athuga hvort þau hefðu ekki áhuga á að varðveita þetta, sem þau gerðu, og ætla líklegast að taka þessar myndir að sér,“ segir Hlynur jafnframt en Drífa Magnúsdóttir forstöðumaður Sundhallarinnar veitti Vísi góðfúslegt leyfi fyrir birtingu á myndunum.

„Þetta er mjög flott samansafn af myndum og póstkortum. Þetta virðist hafa verið ansi þéttur hópur sem vann þarna saman.“

Sundkennsla með léttum brag.Sundhöll Reykjavíkur
Eldri borgarar í sundiSundhöll Reykjavíkur
Frá innilauginni.Sundhöll Reykjavíkur
Glatt á hjalla hjá starfsfólki Sundhallarinnar.Sundhöll Reykjavíkur
Skyndihjálparnámskeið í fullum gangiSundhöll Reykjavíkur
Afgreiðslan á árum áður.Sundhöll Reykjavíkur
Framkvæmdir í gangi.Sundhöll Reykjavíkur
Davíð Oddsson, fyrrum bograrstjóri veitir verðlaun.Sundhöll Reykjavíkur
Svona leit andyrið út á árum áður.Sundhöll Reykjavíkur
Setið og skrafað í afgreiðslunni.Sundhöll Reykjavíkur
Starfsmenn laugarinnar á góðri stundu.Sundhöll Reykjavíkur

Tengdar fréttir

Svona var lífið hjá setuliðinu í Keflavík árið 1955

Fyrir nokkrum árum rakst Einar Óskar Sigurðsson fyrir tilviljun á ljósmyndasafn til sölu á Ebay. Hluti myndanna reyndust vera frá Íslandi á árunum eftir seinna stríð og voru teknar af óþekktum bandarískum manni sem gegndi herþjónustu hér á landi á sjötta áratugnum.

Manstu eftir Akraborginni?

Á árunum 1956 til 1998 var Akraborgin helsta fólksflutningaleiðin yfir Faxaflóa. Ófáir Íslendingar eiga minningar af ferðum með Akraborginni enda flutti skipið um 250 þúsund farþega á ári.

Svona leit Reykja­vík út á fimmta ára­tugnum

Á fimmta áratug síðustu aldar gekk Reykjavík í gegnum mikið uppbyggingarskeið. Fólk í atvinnuleit streymdi í bæinn, íbúum fjölgaði jafnt og þétt og yfirvöld voru undir miklum þrýstingi þegar kom að húsnæðismálum.

Þegar Þórscafé var heitasti skemmtistaðurinn í Reykjavík

Veitinga- og skemmtistaðurinn Þórscafé er á meðal langlífustu og vinsælustu skemmtistaða sem hér hafa starfað en saga hans spannaði ríflega hálfa öld. Á tímabili var Þórscafé eini staðurinn í Reykjavík þar sem lifandi tónlist var leikin að staðaldri og flestir af þekktustu tónlistarmönnum og hljómsveitum þjóðarinnar komu þar fram.

Þegar pönkararnir héngu á Hlemmi

Á níunda áratug síðustu aldar gegndi Hlemmur öðru hlutverki sem samkomustaður en í dag. Þegar skýlið á Hlemmtorgi var opnað á sínum tíma var í fyrsta sinn komið opið almenningsrými á Íslandi, þar sem fólk, óháð stétt og stöðu, gat leitað skjóls. Þar sem nú er mathöll var því fyrr á árum nokkurs konar félagsmiðstöð fyrir einstaklinga sem lifðu utan við og á jaðri samfélagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×