Innlent

Bíla­stæði uppbókuð yfir páskana

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Ferðalangar gætu þurft að huga að öðrum ferðamáta en einkabílnum fyrir páskana.
Ferðalangar gætu þurft að huga að öðrum ferðamáta en einkabílnum fyrir páskana. vísir/vilhelm

Langtímastæðin við Keflavíkurflugvöll eru nú uppbókuð fram yfir páskana. Það er því ekki hægt að ferðast bílleiðis á völlinn og fá bílastæði nema stæðið hafi verið bókað fyrirfram.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia. Þar eru ferðalangar hvattir til að nýta sér aðra samgöngumáta til og frá flugvellinum, hafi þeir ekki þegar bókað sér stæði. Í því samhengi eru bílaleigubílar, leigubílar, rútur og strætisvagnar nefndir.

Páskahelgin er ein stærsta ferðahelgi Íslendinga og því voru ferðalangar hvattir til þess að bóka bílastæði fyrirfram.

„Við viljum þakka gestum flugvallarins fyrir að hafa brugðist vel við ábendingu okkar í síðustu viku um að bóka bílastæði fyrir fram á netinu til að forðast það að koma á bílnum á völlinn á leið úr landi og fá þá ekki bílastæði.

Gestir eru hvattir til að mæta snemma í flug þar sem töluverð umferð er um Keflavíkurflugvöll nú um páskana. Gestir eru einnig hvattir til að nota sjálfsafgreiðslustöðvar til að innrita sig í flug eftir því sem hægt er. Opnað er fyrir innritun í flug kl. 03:45 að morgni og öryggisleit er opnuð kl. 04:00.“

Nánari upplýsingar er að finna á vef Isavia. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×