Lífið

Unnu síðast saman árið 2000

Stefán Árni Pálsson skrifar
Edda og Palli hafa unnið saman í mörg ár en langt síðan síðast.
Edda og Palli hafa unnið saman í mörg ár en langt síðan síðast.

Öll þessi ár með Eddu Andrésardóttur og Páli Magnússyni er á leið í loftið á Stöð 2. Sindri Sindrason hitta þau í Perlunni í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi og fékk að vita hvernig þætti sé um að ræða.

„Þetta eru fréttatengdir, mannlífs og skemmtiþættir. Við tökum fyrir eitt ár í senn og við ætlum ekki að vera með fréttaannál heldur bara það sem okkur finnst áhugavert og skemmtilegt,“ segir Edda. Árin sem verða til umfjöllunar verða ekki tekin í réttri röð.

„Þetta á að vera skemmtilegt, það er kannski aðalatriðið í þessu. Hvað gerði þessi ár skemmtileg,“ segir Páll Magnússon.

Edda og Palli unnu síðast saman árið 2000 en hafa á sínum ferli gengið í gegnum margt saman eins og kemur eflaust fram í þáttunum.

Hér að neðan má sjá brot úr innslagi gærkvöldsins en áskrifendur geta séð það í heild sinni á Stöð 2+ eða í frelsiskerfi Stöðvar 2.

Klippa: Unnu síðast saman árið 2000





Fleiri fréttir

Sjá meira


×