Lífið

Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ung­menni

Árni Sæberg skrifar
Karlakórinn Fjallabræður kemur að Styrktarfélagi barna í Grindavík.
Karlakórinn Fjallabræður kemur að Styrktarfélagi barna í Grindavík. Þorgeir Ólafsson

Sunnudaginn 17. mars fór fram samverustund Grindvíkinga í Hörpu til styrktar börnum, unglingum og æskulýðsstarfi í Grindavík. Á samverustundinni var tilkynnt að tíu milljónir króna hefðu safnast.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að í Eldborgarsal Hörpu hafi Fjallabræður stigið á stokk ásamt kvennakórnum Grindavíkurdætrum, Röggu Gísla, Sverri Bergmann, Jóhönnu Guðrúnu, Unu Torfa, Audda og Sveppa. Guðni Th. Jóhannesson hafi ávarpað samkomuna og tekið lagið með Fjallabræðrum og Grindavíkurdætrum.

Grindvíkingar fylltu Eldborg

Grindvíkingum hafi verið boðið frítt á viðburðinn og þeir hafi fyllt Eldborgarsal Hörpu.

Allir sem komu að samverustundinni með einum eða öðrum hætti hafi gefið vinnu sína. Tónlistarhúsið Harpa hafi veitt afnot af Eldborgarsalnum ásamt öllum tækjum og tæknimönnum án endurgjalds.

Kvennakórinn Grindavíkurdætur lét sig að sjálfsögðu ekki vanta.Þorgeir Ólafsson

Samhliða samverustundinni hafi verið staðið fyrir söfnun fyrir nýstofnað styrktarfélag Barna í Grindavík en félagið sé í stjórn Grindvíkinga ásamt fulltrúum Fjallabræðra og tilgangur þess að skapa samverustundir fyrir börn og unglinga í Grindavík. Eins og staðan er núna sé samfélag Grindvíkinga dreift víða um land.

Leitað hafi verið til fyrirtækja og einstaklinga eftir fjárframlögum og markmiðið að safna að minnsta kosti þeirri upphæð sem myndi safnast með hefðbundinni miðasölu á tónleika í Eldborgarsal Hörpu.

Tíu milljónir í boði

Á samverustundinni í gær hafi Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra, tilkynnt að tíu milljónir króna hefðu safnast. Ungmenni í Grindavík, foreldrar og þeir sem skipuleggja tómstunda-, íþrótta-, tónlistar- og æskulýðsstarf geti nú leitað til styrktarfélagsins og sótt um styrk til að fjármagna samverustundir, æfingaferðir, afþreyingu, ferðalög, mót og svo framvegis til að stuðla að því að grindvísk ungmenni hittist, rækti vináttuna og samfélagið.

Una Torfa tók lagið.Þorgeir Ólafsson

í tilkynningu segir að sérstakar þakkir fyrir stuðninginn fái Kvenfélag Grindavíkur, Harpa Tónlistarhús, Íslandsbanki, Íslenska Gámafélagið, Landsbankinn, Marel, Origo, Phoenix seafood, Samskip, Útgerðarfélag Reykjavíkur, Vörður, Ölgerðin, Össur og Wisefish sem hafi lagt söfnuninni lið ásamt fjölda annarra fyrirtækja og einstaklinga.

Söfnunin sé enn þá opin og öll sem geta hvött til að leggja verkefninu lið með því að leggja inn á reikning Styrktarfélags barna í Grindavík.

Kt: 670224-1630

Bankanúmer: 0133 15 007166






Fleiri fréttir

Sjá meira


×