Tónlist

Selur tösku og eitt ein­tak af nýrri plötu á eina milljón

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn ISSI er að fara að senda frá sér nýja plötu og selur sérhannaða tösku í tilefni af því.
Tónlistarmaðurinn ISSI er að fara að senda frá sér nýja plötu og selur sérhannaða tösku í tilefni af því. Erlingur Freyr

„Útgáfudagur plötunnar er enn leyndó,“ segir tónlistarmaðurinn ISSI hefur að undanförnu unnið hörðum höndum að glænýrri plötu sem ber heitið 21. Fyrr í dag birti hann færslu á Instagram þar sem hann auglýsir tösku og eitt eintak af plötunni til sölu á milljón krónur.

Í færslunni skrifar ISSI meðal annars:

„Aðeins ein taska. Aðeins einn diskur.“

„Taskan er til sölu ásamt forútgáfu plöturnar á geisladisk sem er í vinnslu hjá Glacier Mafia. Pródúserar Glacier Mafia hafa gert mörg af vinsælustu lögum síðari tíma,“ segir ISSI og á þá meðal annars við lög rapparans Gísla Pálma. 

Taskan umrædda og ISSI. Erlingur Freyr

ISSI segir að það taki mikinn tíma, vinnu og pening að framleiða plötu á þessum skala. Hann hafi viljað að taskan endurspeglaði það. 

„Taskan er gerð úr 100% nappa leðri sem er talið lúxus leður og er merkt með einkenninu 21. Innan í henni er svart faux suede efni sem er mjúkt og gefur töskunni lúxus fíling. Hún er síðan handsaumuð og handmáluð í London og skartar silfurlituðum málmi í takt við prentið á henni.

Platan mín 21 er svo loksins að koma út á næstu vikum. Ég og liðið mitt höfum verið að leggja inn ítarlega vinnu síðastliðna mánuði til þess að fullkomna verkefnið og er tíminn loksins að skella á.

Nú liggur platan í höndum hljóðfræðinga sem eru að púsla síðustu púslunum á réttan stað. Á meðan þeir vinna að því hef ég verið að skipuleggja útgáfutónleika í Gamla Bíó sem verða haldnir þann 20. apríl og munu þeir ekki fara framhjá neinum, það er loforð.“

Í spilaranum hér að neðan má heyra lagið Lognið undan storminum með ISSA frá því í fyrra:

Myndbandið fékk um níu þúsund áhorf á fyrsta klukkutímanum og virðist þetta vekja athygli. 

„Það er svolítið klikkað hversu margir eru búnir að horfa á þetta. Ég er kominn með nokkur tilboð. Einn bauð 300 þúsund og nokkrir eru að spyrja hvort hægt sé að semja um verðið. Ég verð að neita því,“ segir ISSI kíminn að lokum.  


Tengdar fréttir

Elíta íslenska rappsins tryllti lýðinn í Iðnó

„Þetta var bara ótrúlegt kvöld og fór alveg vonum framar,“ segir tónlistarmaðurinn og rapparinn Ízleifur. Hann stóð fyrir stöppuðum útgáfutónleikum í Iðnó síðastliðið föstudagskvöld þar sem úrvalslið rappara steig á svið með honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×