Lífið

Myndaveisla: Spessi frum­sýndi Af­sakið meðanað égæli

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Spessi ávarpar gesti en hann var lögum samkvæmt býsna stressaður með það hvernig myndin félli í kramið en hann þurfti engu að kvíða, viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum.
Spessi ávarpar gesti en hann var lögum samkvæmt býsna stressaður með það hvernig myndin félli í kramið en hann þurfti engu að kvíða, viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum. Ásta Kristín

Íslenska heimildamyndin Afsakið meðanað ég æli var frumsýnd í Bíó Paradís að viðstöddum kvikmyndagerðarmönnum og leikstjóra miðvikudagskvöldið 13. mars. Þar létu helstu kanónur úr menningarlífinu sig ekki vanta.

Myndin fjallar um æfingaferli fyrir tónleika sem fór fram í mars 2019 til heiðurs tónlistarmanninum Megasi. Tónlist Megasar spilar lykilhlutverk í myndinni þar sem honum og völdum listamönnum er fylgt eftir og við þá rætt suma hverja. Hver lag um sig þjónar svo sem lykill að æfi Megasar.

Leikstjóri myndarinnar er Spessi, sem skrifaði einnig handrit hennar ásamt Jóni Karli Helgasyni myndatökumanni.

Aðstandendur myndarinnar héldu tölu eftir að myndinni lauk en það var stutt gaman því skammt var í næstu bíósýningu.Ásta Kristín

Lilja Valdimarsdóttir hornleikari mætti í sérhönnuðum bol þar sem sjá má mynd af henni og manninum sem af mörgum er kallaður Meistari Megas. Ásta Kristín

Tónlistarmennirnir Davíð Þór Jónsson og Matthías M. D. Hemstock koma báðir fram í myndinni og voru greinilega sáttir með sína frammistöðu. Góð stemning var jafnt innan sem utandyra.Ásta Kristín

Jón Karl ávarpar salinn í upphafi. Það átti eftir að koma í ljós að myndin féll vel í kramið.Ásta Kristín

Þorvar Hafsteinsson kemst ekki að poppinu fyrir Skarphéðni Guðmundssyni dagskrárstjóra RÚV. Sem eflaust sýna myndina nú þegar fyrir liggur hversu vel hún lagðist í kröfuharðan hópinn sem mættur var.Ásta Kristín

Matthildur Leifsdóttir skósali, Þura Hauksdóttir í Spútnik, Sigurlaug Jónsdóttir landvörður og að endingu er það eiginkona Spessa Áróra Gústafsdóttir skólastjóri.Ásta Kristín

Lára Ómarsdóttir var meðal gesta og hún kann að koma sér vel fyrir.Ásta Kristín

Spessi í hrókasamræðum við Sigga Rallý alltmúglígmann.Ásta Kristín

Gestir skeggræddu efni myndarinnar.Ásta Kristín

Spessi og Jón Karl með kók í hönd.Ásta Kristín

Feðginin Saga og Spessi léku við hvurn sinn fingur.Ásta Kristín

Spessi og Jón Karl eru höfundar myndarinnar og þeir voru sáttir.Ásta Kristín

Gyða Valtýsdóttir tónlistarmaður, Áslaug Íris Friðjónsdóttir myndlistarmaður og Finnur Hákonarson tónlistarmaður létu sér vel líka myndin.Ásta Kristín

Spessi, Áróra Gústafsdóttir eiginkona kvikmyndagerðarmannsins og Saga Sigurþórsdóttir, dóttir Spessa.Ásta Kristín

Sigtryggur Baldursson alías Bogomil Font, Gunnar Smári Egilsson blaðamaður og Finnbjörn Finnbjörnsson málari.Ásta Kristín

Jón Magnússon, Áróra Gústafsdóttir sem er eiginkona Spessa, Hulda Vilhjálmsdóttir og lengst til hægri er Ásdís Spanó.Ásta Kristín

Spessi og rokkamman Andrea Jónsdóttir kankast á.Ásta Kristín

Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari var að sjálfsögðu mættur og í góðum hópi; með honum á myndinni eru Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistarmaður, Hrafnhildur kvikmyndagerðarkona og Ingibjörg er safnstjóri Listasafns Íslands,Ásta Kristín

Viggó Ásgeirsson athafnaskáld, Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðarmaður, Páll Baldvin Baldvinsson rithöfundur og Skarhéðinn Guðmundsson stilla sér upp.Ásta Kristín

Sissa ljósmyndari lét sig vitaskuld ekki vanta og fagnaði með kollega sínum og vini, Spessa.Ásta Kristín

Helgi Björnsson poppari er frá Ísafirði og lét sig ekki vanta þegar sveitungi hans Spessi bauð til frumsýningar.Ásta Kristín

Allir þessir voru harðánægðir með myndina. Og jafnvel gott betur.Ásta Kristín

Bíóbuffin Ásgrímur Sverrisson og þeir Jón Karl og Spessi sem höfðu veg og vanda að myndinni.Ásta Kristín

Ágúst Bjarnason myndlistarmaður og Kristín Helga Jónsdóttir klippari hjá Sjónvarpinu voru mætt og skemmtu sér konunglega.Ásta Kristín

Ekki sá vín á nokkrum manni þó veitt væri áfengi. Af er sem áður var.Ásta Kristín





Fleiri fréttir

Sjá meira


×