Tónlist

Fer á tón­leika um allan heim og hangir með stór­stjörnu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Heimir Ingi og stjarnan Madison Beer áttu skemmtilega endurfundi á dögunum.
Heimir Ingi og stjarnan Madison Beer áttu skemmtilega endurfundi á dögunum. Aðsend

Lífskúnstnerinn Heimir Ingi Róbertsson er 20 ára gamall og elskar fátt meira en að ferðast og fara á tónleika. Hann hefur mikinn áhuga á poppkúltúr og hefur nú þegar séð flest af sínu uppáhalds tónlistarfólki á sviði.

Heimir Ingi birti nýverið sjálfsmynd af sér og tónlistarkonunni Madison Beer á Instagram og skrifar undir: „endurfundir“. Virtust þau hinir mestu mátar en Madison Beer er gríðarlega vinsæl í Bandaríkjunum, með 38 milljón fylgjendur á samfélagsmiðlinum Instagram og 18 milljón mánaðarlega hlustendur á streymisveitunni Spotify

Fylgdi honum á Twitter 2021

Blaðamaður tók púlsinn á Heimi Inga og fékk að heyra nánar frá þessu.

„Ég hef verið aðdáandi Madison Beer frá árinu 2019 og hún byrjaði fyrst að fylgja mér á Twitter árið 2021. Ég hitti hana í gegnum Zoom samtal í Covid því hún var með rafræna tónleika og bauð upp á spjall í kjölfarið. 

Við ræddum um Ísland eiginlega allan tímann. Ég nefndi að ég væri frá Íslandi og þá sagðist hún svo mikið vilja koma til Íslands.

Í fyrsta skipti sem ég hitti Madison svo í raunheimum var í Glasgow árið 2022. Þá var hún á tónleikaferðalaginu Life Support Tour og við þurftum að vera með andlitsgrímur á okkur útaf Covid. Það var algjörlega tryllt upplifun að sjá hana á sviði í fyrsta skipti og fá að hitta hana. Svo í gær, tveimur árum síðar, var ég að hita hana aftur.“

Heimir Ingi og Madison Beer þegar þau hittust fyrst. Aðsend

Mætti tæpum tólf tímum fyrir tónleikana

Heimir Ingi var staddur í Prag ásamt bróður sínum þegar blaðamaður ræddi við hann og fóru þeir á tónleika Beer þar sem eru hluti af tónleikaferðalagi hennar Spinnin Tour. Það þarf að leggja ýmislegt á sig til þess að ná góðu plássi og fór allur dagurinn þeirra í það.

„Við mættum klukkan tíu um morguninn til þess að geta verið fremst. Húsið opnaði klukkan 19:00 en vegna þess að ég var með svokallaðan VIP meet and greet miða fengum við að fara inn klukkan 16:00. Þar fórum við í röð til þess að hitta hana og ég var númer ellefu í röðinni.“

Heimir Ingi var alveg upp við sviðið og náði góðum myndum af Madison Beer. Heimir Ingi.

Hann segir að upplifunin hafi aftur verið ótrúleg.

Að hitta hana aftur var alveg jafn mikið sjokk og það var í fyrsta skipti. Hún var með grímu á sér þar sem hún er búinn að vera veik síðustu daga og hún var að reyna gera allt til þess að hætta ekki við tónleikana og meet and greetið

Um leið og ég labbaði inn til að hitta hana þá tók hún á móti mér með knúsi og baðst afsökunar á því að vera með andlitsgrímum og líta svona út.“

Athugasemd sem Madison Beer skrifaði á TikTok síðu Heimis Inga. Aðsend

Ræddu um TikTok myndband Heimis

Madison Beer og Heimir hafa átt í samskiptum í gegnum Internetið, bæði fylgdi hún honum á Twitter og svo hefur hún skrifað athugasemdir við myndbönd hjá honum á samfélagsmiðlinum TikTok.

„Við byrjuðum að tala um TikTok-ið mitt sem varð viral, það er að segja fékk mikið áhorf, í febrúar þar sem ég notaði nýja lagið hennar Make you mine og hún kommentaði á það. 

Henni fannst það geggjað fyndið og sagðist hafa sýnt öllum vinum sínum það. Hún var mjög kurteis og hrósaði outfittinu mínu.

Svo spurði hún mig hvernig pósu við ættum að gera á myndinni. Hún knúsaði mig aftur eftir að við tókum myndina og þá sagði henni að ég myndi hitta hana aftur á laugardaginn í Barcelona og hún sagði: Ég get ekki beðið,“ segir Heimir Ingi sem á bókað á aðra tónleika hjá Beer eftir nokkra daga.

VIP gjöfin sem Heimir Ingi fékk frá Beer.Aðsend

Svaraði spurningum frá hópnum

Eftir þessa endurfundi fékk Heimir Ingi VIP gjöf sem var eiginhandaráritun frá Beer á ljósmynd af henni og slaufa sem er mjög einkennandi fyrir hana.

„Svo beið ég eftir að hún kæmi í hljóðprufu og svaraði spurningum fyrir okkur sem vorum í VIP. Því miður var hún enn að ná sér eftir veikindi þannig að hún þurfti að hætta við hljóðprufuna en hún svaraði nokkrum spurningum sem við vorum búin að spyrja fyrir fram. Eftir það tók hún hópmynd með okkur fyrir framan sviðið.“

Hópmyndin, Heimir Ingi er í öftustu röð til vinstri. Aðsend

Eftir það var tónleikasalurinn opnaður fyrir almenningi og Jann og Jillian Rossi sáu um upphitunaratriðið.

„Síðan kom Madison á sviðið um 21:30, tæpum tólf tímum eftir að við mættum. Hún var mjög góð og flott uppi á sviði.

Það var ótrúlega skemmtilegt að heyra nýju plötuna hennar Silence between songs á sviði og hún tók líka nokkur gömul klassísk lög frá sér.“

Mynd af fána Tékklands sem einn aðdaendi kom með og lét alla í röðinni skrifa nafn sitt á. Madison Beer tók fánann upp á sviðið í lokalaginu og dansaði með hann að sögn Heimis Inga. Aðsend

Olivia Rodrigo og Nicki Minaj á döfinni

Allt í allt flutti Madison 23 lög sem Heimir Ingi segir að hafi verið magnað miðað við veikindin hennar.

„Mér finnst mjög gaman að sjá hvað hún hugsar mikið um aðdáendur sína og hún er mjög dugleg að eiga í samskiptum við þá á Twitter til dæmis, sem sýnir bara hvað hún er góð manneskja. Þetta voru algjörlega geggjaðir tónleikar og ég get ekki beðið eftir að sjá hana aftur í Barcelona á laugardaginn.

Ég hef mjög mikinn áhuga á að ferðast og fara á tónleika í leiðinni. Ég hef séð flest alla uppáhalds söngvarana mína live. Má þar nefna Ariana Grande, SZA, Beyonce, Harry Styles, The Weeknd og margt fleira. Í næsta mánuði fer ég á Tate McRae í London. Svo í maí fer ég á Olivia Rodrigo í Glasgow og Nicki Minaj í Manchester,“ segir Heimir Ingi fullur tilhlökkunar að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×