Lífið

Stjörnulífið: Binni Glee fær ekki nóg af Lauf­eyju

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Liðin vika var ansi lífleg hjá stjörnum landins.
Liðin vika var ansi lífleg hjá stjörnum landins.

Viðburðarík vika er nú að baki og báru árshátíðir og tónleikar Laufeyjar Lín í Hörpu þar hæst. Þá nýttu margir tækifærið og skelltu sér á skíði áður en snjórinn kveður okkur í bili.

Stjörnur landsins skinu skært um helgina hvort sem það var í glimmergallanum á dansgólfinu eða skíðadressinu í brekkunni.

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.

Skíðaskvísur í barbie þema

Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir skellti sér í skíðaferð á Siglufjörð ásamt fríðum hópi kvenna.

Ásdís Rán
Ásdís Rán

Öllu tjaldað til fyrir veisluhöld helgarinnar

Mikið var um veisluhöld um helgina þar má nefna vorhátíð Icelandair, árshátíð Hafnarfjarðar, ráðhússins í Reykjavík, Mosfellsbæjar og Íslandsbanka. 

Milla Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson borgarstjóri birtu mynd af sér prúðbúnum á árshátíð ráðhússins.

Salka Sól og Selma Björnsdóttir sáu um veislustjórn á vorhátíð Icelandair sem var haldin með pompi og prakt í Laugardalshöll á laugardag.

Stórstjarna helgarinnar

Laufey Lín tónlistarkona hélt þrenna tónleika í Hörpu um helgina. 

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra birti mynd af sér ásamt Laufeyju, Juniu og móður þeirra.

Binni Glee er mikill aðdáandi Laufeyjar og mætti á alla tónleikana um helgina.

Binni Glee
Binni Glee

Saga Sig ljósmyndari segist hafa farið grátandi út af tónleikum Layfeyjar. 

Partý fyrir Óskarinn

Rúrik gerði sér lítið fyrir og skellti sér í óskarsverðlaunapartý hjá stórstjörnunni Elton John.

Til­bú­inn fyr­ir Óskar­sverðlaunapartí Elt­ons,“ skrifaði Rúrik og birti mynd af sér í story á Instagram.

Rúrik

Hamingjusöm í Disney-landi

Embla Wigum skemmti sér í Disney-landi í París.

Óvænt ánægja 

Fanney Dóra tilkynnti að hún ætti von á sínu öðru barni.

Dýrmæt augnablik

Birgitta Líf Björnsdóttir og Enok Jónsson fóru í fjölskyldumyndatöku hjá Ínu Maríu LXS-skvísu.

Fullt út úr dyrum í Iðnó

Raparinn Ízleifur hélt tónleika í IÐNÓ á föstudagskvöld og var fullt út úr dyrum. Meðal gesta voru Bassi Maraj, Birnir, Jóhann Kristófer og Daniil.

Morðgátupartý 

Birta Líf Ólafsdóttir hélt svokallað morðgátupartý um helgina.

Sunneva Einars birti myndir frá kvöldinu.

Jóhanna Helga glæsileg að vanda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×