Lífið

Stærstu stundirnar á Óskarnum: Grínuðust með Barbenheimer og John Cena mætti nakinn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Jimmy Kimmel aðstoðaði John Cena við að tilkynna sigurvegarann í flokki búningahönnuða.
Jimmy Kimmel aðstoðaði John Cena við að tilkynna sigurvegarann í flokki búningahönnuða. Rich Polk/Getty Images

Óskarsverðlaunahátíðin fór fram með pompi og prakt í Los Angeles borg í gær. Líkt og fyrri ár voru þar nokkrar stundir sem slógu í gegn og vöktu meiri athygli en aðrar.

Stórmyndin Oppenheimer varð hlutskörpust en samantekt um helstu verðlaunahafa má sjá hér.

Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel var kynnir í ár og gerði stólpagrín að ýmsum. Meðal annars Robert Downey Jr. sem hann aus reyndar lofi á sama tíma. Þá gerði kynnirinn grín að nektaratriðum í kvikmyndinni Poor Things, að því er virtist aðalleikonunni Emmu Stone til lítillar gleði.

Paul Giamatti sem fór með aðalhlutverkið í kvikmyndinni The Holdovers táraðist þegar fyrstu verðlaun kvöldsins voru afhent. Þar hlaut meðleikkona hans í myndinni, Da’Vine Joy Randolph styttuna fyrir besta aukahlutverkið.

Þegar komið var að því að kynna verðlaunin fyrir bestu búningana, förðun og hár mætti bandaríski leikarinn John Cena óvænt á svið, en Jimmy Kimmel hafði áður rifjað það upp þegar óvæntur gestur hljóð nakinn yfir Óskarsverðlaunasviðið árið 1974. John Cena, sem leikið hefur í myndum líkt og Argylle, The Suicide Squad og Barbie, var einmitt nakinn og með ekkert nema verðlaunaskiltið til varnar hinu helgasta.

Þá mættu leikararnir Emily Blunt og Ryan Gosling saman á svið til að afhenda verðlaunin fyrir besta áhættuleik. Þau fóru einmitt með aukahlutverk í stærstu myndum síðasta árs, Oppenheimer og Barbie. Þar grínuðust þau með meintan ríg milli leikara myndanna.

„Ég er fegin að við getum sleppt þessum ríg,“ sagði Emily Blunt í gríni. „Þó svo að eftir þessa verðlaunatíð þá sé það í rauninni enginn rígur,“ sagði hún jafnframt og vísaði til þess að Oppenheimer hefur sópað til sín verðlaunum á meðan þau hafa verið aðeins færri hjá Barbie.

Þá mættu Danny DeVito og Arnold Schwarzenegger saman á svið til að afhenda verðlaunin fyrir bestu tæknibrellurnar. Þau verðlaun fóru til framleiðenda japönsku kvikmyndarinnar Godzilla Minus One. Teymi myndarinnar mætti með Godzilla dúkkur upp á svið og voru öll í samrýmdum skóm.

Stjörnum prýdd Barbie tónlistaratriði

Barbie myndin hlaut ein verðlaun í nótt. Þau hlaut tónlistarkonan Billie Eilish fyrir besta frumsamda lagið fyrir lagið What Was I Made For. Tónlist úr myndinni átti hreinlega Óskarsverðlaunasviðið.

Ryan Gosling sló í gegn þar sem hann flutti lagið I'm Just Ken úr myndinni. Á sviðið með honum voru meða lannars Slash úr Guns N' Roses og þá kom hann meðleikurunum í Margot Robbie og Simu Liu á óvart.

Þá virtist hluti úr tónlistaratriðinu vera virðingarvottur við lagið Diamonds Are a Girl's Best Friend sem Marilyn Monroe söng í kvikmyndinni Gentlemen Prefer Blondes frá 1953.

Vandræði með kjólinn

Það vakti mikla athygli í nótt þegar Emma Stone lenti í vandræðum með kjólinn sinn þar sem hún var á leið upp á svið að taka við verðlaunum fyrir besta hlutverk í Poor Things.

Leikkonan gladdist einmitt mjög þegar tilkynnt var að Nadia Stacey hafi hlotið verðlaun fyrir búningahönnun í Poor Things. Myndband af viðbrögðum leikkonunnar hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.

Þá mætti hundurinn Messi á hátíðina. Sá fór einmitt með stórt hlutverk í kvikmyndinni Anatomy of a Fall og hlaut hann sérstakt lof fyrir hlutverkið af kynninum Jimmy Kimmel. Svo virðist vera sem Messi sé ekki mikill aðdáandi Matt Damon en Variety birti myndband af honum þar sem hann virtist pissa á Hollywood stjörnu leikarans.

Erlendir miðlar hafa svo sérstaklega getið þess að bandaríski stórleikarinn Al Pacino hafi virst hafa átt í stökustu vandræðum með að afhenda verðlaunin fyrir bestu myndina. Hann las sigurvegarann, Oppenheimer, upp með miklum semingi svo athygli vakti.

„Besta myndin....uh, ég þarf að kíkja í umslagið. Og ég ætla að gera það. Hér er það. Og augun mín sjá....Oppenheimer?“ sagði leikarinn með þannig efasemdarröddu að heyra hefði mátt saumnál detta í salnum á meðan. „Já já!“ sagði hann svo við salinn sem gat andað léttar.

Breski miðillinn The Guardian tók jafnframt saman stærstu stundirnar á Óskarnum.

Að neðan má svo sjá samantekt yfir best klæddur stjörnurnar á Óskarnum. Steinaðir kjólar voru afar vinsælir.


Tengdar fréttir

Best klæddu stjörnurnar á Óskarnum

Stærstu stjörnur heimsins skína skært í hátískuhönnun á rauða dreglinum í kvöld í tilefni af Óskarsverðlaunahátíðinni. Hátíðin fer nú fram í 96. skipti og er haldin í Dolby leikhúsinu í Hollywood. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×