Sex­tán ára skaut Barcelona í silfursætið

Lamine Yamal hefur slegið í gegn með Barcelona í vetur.
Lamine Yamal hefur slegið í gegn með Barcelona í vetur. Getty/Jose Breton

Hinn sextán ára gamli Lamine Yamal heldur áfram að slá í gegn með Barcelona í spænsku 1. deildinni í fótbolta en hann skoraði afar snoturt mark í kvöld.

Yamal skoraði eina markið í sigri Börsunga á Mallorca, á 73. mínútu, þegar hann sneri á varnarmann rétt innan teigs og skrúfaði boltann í fjærhornið.

Ilkay Gündogan hafði fengið kjörið tækifæri til að koma Barcelona yfir í fyrri hálfleik en vítaspyrna hans var varin. Yamal kom hins vegar til bjargar.

Þetta var fjórða mark Yamal í spænsku deildinni í vetur og hann hefur einnig lagt upp sex mörk. Alls hefur hann skorað eða lagt upp þrettán mörk í öllum keppnum á leiktíðinni.

Sigurinn kom Barcelona upp fyrir Girona í 2. sæti, en Girona á leik til góða. Börsungar eru með 61 stig en enn fimm stigum á eftir toppliði Real Madrid sem á auk þess leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira