Innlent

Sveitar­fé­lögin ein komi í veg fyrir undir­ritun kjara­samninga í dag

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Heimir Már Pétursson skrifa
Vilhjálmur Birgisson formaður SGS segir undirritun kjarasamninga velta á sveitarfélögunum.
Vilhjálmur Birgisson formaður SGS segir undirritun kjarasamninga velta á sveitarfélögunum. Vísir/Einar

Vilhjálmur Birgisson formaður SGS segir undirritun kjarasamninga velta algjörlega á sveitarfélögunum. Allar deilur við Samtök atvinnulífsins hafi verið leystar en nú bíði stéttarfélögin eftir skýrum skilaboðum frá sveitarfélögunum. 

Hilmar Harðarson formaður Samiðnar, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Vilhjálmur Birgisson formaður SGS gengu til fundar með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í stjórnarráðinu í morgun til að ræða aðkomu stjórnvalda að kjarasamningunum. Vilhjálmur sagðist við komuna búast við því að Katrín lesi yfirlýsingu frá ríkisstjórninni fyrir þríeykið, sem innihaldi þær aðgerðir sem stjórnvöld láti fylgja til að styðja við nýja samninga. 

„Ég held það liggi alveg fyrir að kjarasamningurinn er nánast klár. Hann er núna bara til yfirlestrar hjá okkar fólki. Gagnvart Samtökum atvinnulífsins sýnist mér þetta vera frá gengið,“ sagði Vilhjálmur í samtali við fréttastofuna. 

Óljóst er hvort sveitarfélögin í heild sinni muni koma að samningnum. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að draga hluta gjaldskrárhækkana til baka og ætlar sömuleiðis að verða við kröfum stéttarfélaganna um fríar skólamáltíðir. Samkvæmt heimildum fréttastofu er enn andstaða við fríar skólamáltíðir innan sveitarfélaga þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er í meirihlutasamstarfi en verkalýðsráð Framsóknarflokksins og Vinstri grænna hafa skorað á sveitarfélög landsins að afnema gjaldtöku fyrir máltíðirnar. 

„Það er eitt af því sem við þurfum að skoða rækilega í dag. Eins og staðan er núna og það orðalag sem ég hef séð frá sveitarfélögunum þá verður það þess valdandi að við munum ekki geta skrifað undir í dag,“ segir Vilhjálmur.

Þannig að undirritun kjarasamninga veltur á sveitarfélögunum á næstu dögum?

„Algjörlega, við getum ekki kynnt eitthvað fyrir okkar félagsmenn þar sem orðalag er með þeim hætti að við getum ekki fest hendur á hvort þau ætli að vera með eða ekki. Þótt ég hafi vitneskju um að fjölmörg sveitarfélög geri sér grein fyrir sinni ábyrgð og hafa lýst því yfir að þau ætli að vera með eru önnur sem hafa ekki gert það og hafa frekar verið að skemma fyrir hlutunum.“

Hilmar Harðarson segir stemninguna meðal samningsaðila góða og fólk sé sátt við það sem komið er á blað.

„Ég ber miklar vonir til þess að þessi samningur skili því sem við erum að ætlast til: Það er að minnka verðbólgu, lækka vexti og kalla fram þokkalega sátt um þá sem mest þurfa á þessu að halda, það er barnafólk og fólk sem er með þung húsnæðislán. Ef við náum að koma þessu fram þá er markmiði samningsins náð,“ segir Hilmar. 

Hann segir að nú verði að koma í ljós hvað stjórnvöld og sveitarfélög bjóði upp á. 

„Inni í þessu var það að það yrðu fríar máltíðir í skólum. Það stendur enn í einhverjum sveitarstjórnarmönnum en ég hefði nú haldið að það væri það mikill hagur í þessum kjarasamningum og hann væri það leiðandi á vinnumarkaði í sambandi við launastefnu og annað að það ætti að vera öllum sveitarfélögum til góða.“

Sólveig Anna tekur undir að miklu máli skipti að sveitarfélögin sendi frá sér skýr skilaboð á næstu klukkustundum. Hún minnir þá á að stéttarfélögin gangi að samningsborðinu með sveitarfélögum bráðlega, en samningar losna í lok þessa mánaðar.

„Við höfum komið því á framfæri að við munum - Efling, SGS og aðrir í breiðfylkingunni - fylgja þeirri launastefnu sem nú hefur verið mótuð. Ávinningur sveitarfélaganna er sannarlega mikill, burtséð frá lækkun vaxta og verðbólgu sem er okkar stóra markmið. Það er óskiljanlegt á þessum tímapunkti að sveitarfélögin séu ekki búin að gera okkur skýrt hvað nákvæmlega þau ætla að gera. Ég vona að það skýrist núna mjög fljótlega,“ segir Sólveig. 

Þannig að verkfallsboðun gæti verið blásin af í dag eða á morgun? 

„Við erum núna að leggja lokahönd á allt sem við kemur samningum okkar við Samtök atvinnulífsins. Þar er afskaplega fátt eftir. Um leið og það er allt komið á hreint og við erum tilbúin til að undirrita, eins og ég hef sagt og augljóst er, að um leið og samningarnir eru undirritaðir þá erum við komin undir friðarskyldu og engin verkföll.“


Tengdar fréttir

Loka­sprettur kjara­við­ræðna með for­sætis­ráð­herra

Forystufólk breiðfylkingarinnar, Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar mæta til fundar við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í Stjórnarráðshúsinu klukkan 10 í morgun til að ræða stöðuna í kjaraviðræðum breiðfylkingarinnar við Samtök atvinnulífsins.

Gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir

Ég er sammála ályktun sveitarstjórnarráðs Framsóknar sem kemur inn á að sveitarfélög tryggi gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum eins og ríkisstjórnin hafi samþykkt, enda er það í anda Framsóknar að setja fjölskyldufólk í forgang.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×