Innlent

Segir meðal­tals­út­reikning Haf­ró ekki málið

Jakob Bjarnar skrifar
Jón gerði grein fyrir helstu niðurstöðum Arev varðandi áhættumat Hafró á fundi sem haldinn var í morgun.
Jón gerði grein fyrir helstu niðurstöðum Arev varðandi áhættumat Hafró á fundi sem haldinn var í morgun. vísir/vilhelm

Jón Scheving Thorsteinsson hjá Arev fór yfir álitsgerð sem hann vann að undirlagi Landsambands veiðifélaga vegna áhættumats Hafró vegna sjókvíaeldis á fundi í morgun.

„Þegar leiðrétt hefur verið fyrir mistökum við meðferð tölfræðigagna í áhættumati erfðablöndunar eldislax við villta laxastofna, sem Hafrannsóknastofnun gefur út, kemur í ljós að forsendur matsins um hversu mikið af eldislaxi er talið óhætt að gangi að meðaltali í ár á Íslandi eru fallnar.“

Slysasleppingar eins og gikkhlaup í gosum

Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi í Húsi Sjárvarklasans í dag þar sem kynntar voru niðurstöður úr greiningar- og rýnivinnu tölfræði- og greiningarfyrirtækisins Arev á áhættumati erfðablöndunar. Á fundinum kynnti Jón Scheving Thorsteinsson stærðfræðingur frá Arev tölfræði niðurstöður vinnunnar og setti fram gagnrýni á fjölmarga þætti í núverandi áhættumati. Fundinn sátu fulltrúar Matvælaráðuneytis, Hafrannsóknastofnunar, Landssambands veiðifélaga, veiðirétthafa og náttúruverndarsamtaka.

Áhættumatið stýrir því hversu mikið magn af eldislaxi er Hafrannsóknastofnun telur óhætt að hafa í sjókvíum við ísland, án þess að það skaði villta laxastofna.

Lögum samkvæmt ber sjókvíaeldisfyrirtækjum að taka mið af hættumati erfðablöndunar.vísir/vilhelm

Jón segir, í samtali við Vísi, að meðaltalsútreikningur eins og sá sem Hafrannsóknarstofnun hefur stuðst við sé ekki heppilegur. Þegar slysasleppingar á borð við þá sem áttu sér stað í Kvígindisdal í fyrra eiga sér stað sé þetta í líkingu við gikkhlaup í gosum, allt fer af stað og það sem áður var viðtekið er farið fyrir bý. 

Jón segist vonast til að Hafró taki mið af vinnu Arev þegar þeir leggja nýtt áhættumat fram sem vonandi verður sem fyrst. En Hafró dró áhættumatið til baka, en það ber að endurskoða á þriggja ára fresti.

Ná ekki að fanga stóra strokaatburði

Í tilkynningu frá Landsambandi veiðifélaga, sem pöntuðu athugunina frá Arev, segir að athugasemdirnar Arev beinast meðal annars að rangri notkun Hafrannsóknastofnunar á norskum rannsóknum sem meta endurkomuhlutfall eldislaxa, það er það hlutfall af strokulöxum sem gengur upp í ár.

„Telja sérfræðingar Arev að túlkun áhættumatsins á niðurstöðum þessara rannsókna sé röng og gangi of skammt. Þá er sett fram gagnrýni á að í áhættumati sé notað tíu ára meðaltal til að meta stofnstærð villtra íslenskra laxastofna, að líkan til að áætla dreifingu stroklaxa sé notað með röngum hætti og að matið nái ekki að fanga áhættu við stóra strokatburði sem verða á tveggja til þriggja ára fresti.“

Jón Scheving sagði á fundinum að ef tekið væri tekið tillit til allra þessa þátta muni ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um áhættumat lækka umtalsvert. Eins sagði hann að atburður sem átti sér stað hjá Arctic Fish árið 2023 gerði það að verkum að núverandi áhættumat næði á engan hátt utan um slíka atburði.


Tengdar fréttir

Tvö alvarleg frávik hjá Arctic Sea Farm

Matvælastofnun hefur gefið Arctic Sea Farm hf, dótturfyrirtæki Arctic Fish, frest til 19. janúar að bregðast við tveimur alvarlegum frávikum sem greindust við eftirlit á starfsemi í sjókvíeldi í Kvígindisdal í Patreksfirði í september. Annað frávikið varðar ljósabúnað en hitt eftirlit neðansjávar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×