Innlent

Frír matur í skólum og lausn eftir fæðingar­or­lof til um­ræðu

Heimir Már Pétursson skrifar
Góður andi var í viðræðum breiðfylkingar stéttarfélaga innan ASÍ og fulltrúa SA hjá ríkissáttasemjara í morgun.
Góður andi var í viðræðum breiðfylkingar stéttarfélaga innan ASÍ og fulltrúa SA hjá ríkissáttasemjara í morgun. Stöð 2/Einar

Leiðtogar breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins segja það ráðast af viðbrögðum sveitarfélaganna hvort hægt verði að skrifa undir nýja kjarasamninga á næstu tveimur sólarhringum. Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun Eflingar hefst að óbreyttu klukkan fjögur í dag.

Forystufólk Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar, öðru nafni breiðfylkingin, kom saman til fundar með Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara klukkan níu í morgun. Góður gangur hefur verið í viðræðunum undanfarna daga.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir atkvæðagreiðslu um verkfall ræstingarfólks að óbreyttu hefjast klukkan 16:00 í dag. Vonandi miði samningaviðræðum áfram fyrir þann tíma.Stöð 2/Einar

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að þrátt fyrir það hefjist atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir hjá ræstingarfólki innan Eflingar að óbreyttu klukkan fjögur í dag. Hún voni hins vegar að það muni sjást til lands í viðræðunum fyrir kvöldið.

„Það eru ýmis mál sem á eftir að leysa. Sum hver mjög mikilvæg. Ef það gengur vel hjá okkur í dag þá vonandi og mögulega einhvern tíma í kvöld getum við verið komin yfir ána og upp á bakkann,“ segir Sólveig Anna.

Fulltrúar breiðfylkingarinnar fengu í gær kynningu á því sem ríkisstjórnin er tilbúin til að gera til að liðka um fyrir hófsömum kjarasamningum til fjögurra ára með það að markmiði að minnka verðbólgu hratt og þar með lækka vexti. Sólveig Anna segir hins vegar mikilvægt að sveitarfélögin komi einnig að málum.

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari er með mörg járn í eldinum þessa dagana. Tímamótasamningar gætu verið í burðarliðnum á bæði almenna- og opinbera vinnumarkaðnum.Stöð 2/Einar

Þar hefur samkvæmt heimildum verið rætt um að hluti gjaldskrárhækkana verði dreginn til baka, bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla verði brúað og skólamáltíðir verði gjaldfrjálsar.

Sólveig Anna segir samningaviðræðum hafa miðað vel eftir að snurða hljóp á þráðinn vegna deilna um forsenduúrræði samninga á föstudag í þar síðustu viku.

„Ég tel að það hvað Efling gat unnið hratt varðandi að fáverkfallsboðun,  og við vorum og erum tilbúin með verkfalls atkvæðagreiðslu, hafi sannarlega haft mikið að segja.“

Atkvæðagreiðslan stendur enn þá til eða hvað?

„Hún á að hefjast í dag klukkan fjögur. Mögulega gerist eitthvað áður en klukkan slær fjögur,“ segir formaður Eflingar.

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins vonast eftir árangursríkum viðræðum við leiðtoga sveitarfélaganna um aðkomu þeirra að kjarasamningum í dag.Stöð 2/Einar

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segir að hægt verði að ganga frá nýjum samningum á næsta einum til tveimur sólarhringum að því gefnu að sveitarfélögin komi óskipt að málum. Stefnt væri að fundi með forystu þeirra í dag.

„Þau verða að átta sig á sinni ábyrgð því það liggur alveg fyrir að ávinningur sveitarfélaga af þeirri leið sem við erum að fara hér er gríðarlegur. Hann er miklu, miklu meiri heldur en nokkurn tíma það atriði sem hér er undir. Margfalt meiri. Þannig að þetta er einhver pólitík sem þarna er og þarf bara að leysa úr,“ segir Vilhjálmur.

Óánægja hjá sveitarfélögunum

Samkvæmt heimildum fréttastofunnar stendur það helst í meirihlutanum í Kópavogi og á Akureyri undir forystu Sjálfstæðismanna og mörgum öðrum smærri sveitarfélögum að samþykkja fríar skólamáltíðir næstu fjögur árin. Sú aðgerð myndi helst gagnast millitekjufólki og yrði samkvæmt heimildum fréttastofu að mestu fjármögnuð af ríkinu.

Innan þessara sveitarfélaga gætir nokkurrar óánægju með að hugmyndin um fríar skólamáltíðir hafi ekki borist þeim til eyra fyrr en nýlega. Margar aðrar aðgerðir sveitarfélaga gætu komið í stað þessarar lækkunar. Reynslan af loforðum stjórnvalda um að standa undir kostnaði við málaflokka hjá sveitarfélögunu væri ekki góð.

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins minnir á að sveitarfélögin hafi lýst stuðningi sínum við markmið kjarasamninganna strax í upphafi viðræðna.Stöð 2/Einar

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er eins og forysta breiðfylkingarinnar bjartsýn á að hægt verði að ná samningum á næstu sólahringum. Búið væri að fara yfir stærstu málin þótt enn stæðu önnur mál út af sem þyrfti að ræða. Aðkoma sveitarfélaganna skipti miklu máli varðandi framhaldið.

„Sveitarfélögin lýstu því yfir strax í upphafi viðræðna að það væri þeirra sýn að mikilvægt væri að styðja við markmið einmitt þessara samninga. Lýstu meðal annars yfir að þau væru tilbúin til að endurskoða sínar gjaldskrár. Þannig að ég treysti því að það samtal gangi vel,“ sagði Sigríður Margrét Oddsdóttir í morgun.

Verslunarmenn sem hafa sagt sig úr breiðfylkingunni koma til fundar með Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag.

Fréttin var uppfærð kl 13:43.


Tengdar fréttir

Segir undirskrift handan við hornið

Formaður Starfsgreinasambandsins á von á því að skrifað verði undir kjarasamninga á næstu einum til tveimur sólarhringum. Viðsnúningur varð í viðræðum um helgina og nú er aðkoma sveitarfélaganna það eina sem stendur út af borðinu. 

Telja hóf­legar launa­hækkanir ekki duga einar og sér

Viðræðunefnd VR og Landssambands íslenskra verzlunarmanna (LÍV) hafa formlega óskað eftir að ríkissáttasemjari hlutist til um viðræður við Samtök atvinnulífsins. Nefndin telur að í viðræðunum dugi hóflegar launahækkanir ekki einar og sér.

Ögur­stund runnin upp og Vil­hjálmur býr sig undir það versta

Ögurstund er runnin upp í kjaraviðræðum Eflingar, Starfsgreinasambandsins og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins. Formaður SGS segist búa sig undir það versta en samninganefndir funda nú hjá ríkissáttasemjara í skugga verkfallsboðunar.

„Þess fullviss að verkfallsboðunin verður samþykkt“

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist vera fullviss um að félagsmenn muni samþykkja verkfallsboðun. Boðað hefur verið til atkvæðagreiðslu um verkföll starfsfólks sem starfa við ræstingu á mánudag. Fundað verður á eftir í Karphúsinu klukkan níu.

Ríkur verkfallsvilji hjá ræstingafólki sem greiðir atkvæði á mánudag

Fulltrúar breiðfylkingarinnar svokölluðu og Samtaka atvinnulífsins hafa verið boðuð til fundar í fyrramálið en í gærkvöldi ákvað samninganefnd Eflingar að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall hjá félagsfólki Eflingar sem starfar við ræstingar. Formaður Eflingar telur að ríkur verkfallsvilji sé í þeim hópi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×