Hin meintu „illvirki" Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 1. mars 2024 10:00 Það sem allir virðast vera að adda mér og Árna Tómasi saman er best að ég komi með annan pistil handa ykkur. Árni Tómas skrifaði uppá fyrir son minn, sprautufíkil til margra ára með margar mis gagnlegar meðferðir að baki og fangelsisdvalir. Árni Tómas sá honum fyrir dópi svo hann sá enga ástæðu til að sækja sér hjálp við fíkn sinni, hann var orðin mjög veikur í restina, en kom sér sem betur fer inn á Vog sem tók strax á móti honum, hann var það veikur. Hann var ekki að byggja upp neitt samband við sína nánustu og bjó á Gistiskýlinu þennan tíma. Hann þurfti ekki að koma með neina pappíra né félagsráðgjafa með sér til Árna Tómasar, sá sem fór með honum var maður sem hann hafði kynst ekki löngu áður, þar sem minn var að stela en hinn að reyna að finna stolna muni fyrir fólk. Hann staðfesti að minn væri morfínfíkill og minn sagði hvað hann þyrfti stóran skammt og Árni Tómas skrifaði uppá.... Eitt skiptið sem hann sprautaði sig með lyfi uppá skrifuðu af Árna Tómasi hné hann niður, hann var í mánuð á spítala ekki hugað líf og ber varanlegan skaða til lífstíðar eftir dagskammtinn sinn frá Árna Tómasi. Það ver ekki eitruð pilla sem hann fékk á götunni. heldur lyf úr apóteki ávísað af Árna Tómasi Árni Tómas gagnrýnir Valgerði Rúnarsdóttur yfirlækni á Vogi og sakar um blekkingar, en hann er líka að blekkja, blekkja sig, aðstandendur og fíklana sjálfa og það sem verra er stofna þeim í hættu. Ég kalla eftir opinberi rannsókn á máli Árna Tómasar, hvort hinir meintu fíklar hans voru allir í raun fíklar og hvernig staða þeirra var áður og hvernig þeim reiddi af á meðan þau fengu morfín hjá Árna Tómasi. Sumir af meintum fíklum voru dópsalar og aðrir óvandaðir menn, margir fíklar voru í annarskonar neyslu en skiptu í morfín því þau fengu það ókeypis og án vandræða hjá Árna Tómasi. Ég tel fulla ástæðu fyrir rannsókn af landlækni og lögreglu líka. „Það fer engin í meðferð með „gáttina“ fulla af morfíni“ skrifaði fíkill í lokuðu spjalli sem ég var hluti af. Ég hef hugað að málsókn á hendur Árna Tómasi fyrir að skaffa syni mínum lyf sem héldu honum frá meðferðum sem hann þurfti á að halda, og fyrir að valda næstum dauða hans og vegna varanlegs líkamskaða sem hann hlaut. Ég ítreka það aftur að Árni Tómas er gigtarlæknir og var ekki með neitt eftirlit með „fíklunum sínum“ Og aftur fá Alma Möller Landlæknir og Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri á Sjúkrahúsinu Vogi "eitraða pillu" frá Árna Tómasi Höfundur er með réttlætiskennd. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fíkn Lyf Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir Skoðun Dóttir mín – uppgjör eineltis Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir Skoðun Hér er elíta, um elítu, frá elítu, til elítu Ragnar Kjartansson Skoðun Skoðun Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Skoðun Auðkenni þarf að passa upp á Eva Valdís Jóhönnudóttir skrifar Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Hver er besti skólastjórinn? Aðalheiður Björk Olgudóttir skrifar Skoðun Vofa húsagans býsnast enn Haukur Már Helgason skrifar Skoðun Nokkrar staðreyndir um Ísland, Katrínu og Gaza Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Til þeirra sem hyggjast kjósa Katrínu Jakobsdóttur Guðlaugur Bragason skrifar Skoðun Katrín og kvenhatrið Ólafur Sveinsson skrifar Skoðun Bessastaðir eru ekki fyrir byrjendur Þorbergur Þórsson skrifar Skoðun Ég vil Baldur og því kýs ég Baldur Ólafur Helgi M. Ólafsson / Starína skrifar Skoðun Inngönguspáin Eygló Halldórsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar