Tónlist

GKR gefur út nýja plötu: „Ég er ekki eins og ég var þegar ég var yngri“

Bjarki Sigurðsson skrifar
GKR skaust fyrst á sjónarsviðið árið 2016.
GKR skaust fyrst á sjónarsviðið árið 2016. Jói Kjartans

Rapparinn GKR gaf út sína fyrstu plötu í sex ár á föstudaginn í síðustu viku. Hann vill að fólk túlki á eigin hátt um hvað platan er og það hafa tekið langan tíma að byggja upp sjálfsöryggið og viljann til þess að koma sér aftur á sjónarsviðið. 

Smáskífan heitir GKR 2 og er þriðja plata GKR, sem heiti réttu nafni Gaukur Grétuson. Fyrir hafði hann gefið út stuttskífuna GKR árið 2016 og „mixtape-ið“ Útrás árið 2018. Um er að ræða sex laga smáskífu með lög á borð við SNERTINGU VIÐ MIG, GERI ÞAÐ SEM ÉG VIL og ÞYKIR ÞAÐ LEITT.

Þyngri tilfinningar en áður

Vinsælustu lög GKR síðustu ár eru lagið Morgunmatur sem er lagið sem kom honum á sjónarsviðið og svo lagið Úff sem hann gerði með rapparanum Birni. 

„Ég myndi segja að þetta sé aðeins öðruvísi. Þegar maður er að skapa sjálfur þá líður manni eins og að þetta komi náttúrulega og finnur ekki mun á þessu og öðru. En ef ég er manneskja utan frá að horfa á það sem ég hef gert, myndi ég segja að þetta sé frábrugðið. Þetta er persónulegra og kannski aðeins þyngra. Aðeins þyngri tilfinningar og ég myndi segja að þetta sé meira skapandi,“ segir GKR um nýju plötuna. 

Plötuumslag nýju plötunnar.GKR

Þurfti að finna sjálfstraustið á ný

Hann segir ferlið í heild sinni hafa tekið hann sex ár en síðustu sex mánuði hefur hann einbeitt sér að því að klára þessi sex lög sem enduðu á plötunni. Mikill tími fór í að byggja upp sjálfstraust í að gefa plötuna út. 

„Fyrir mér var bara erfitt að koma mér í þann gír að vilja koma til baka á sjónarsviðið. Það var erfitt fyrir mér. Núna þegar ég er kominn með aðeins meira sjálfsöryggi og trú og viljann til þess, þá er það ekki það erfitt fyrir mig að vera í sviðsljósinu. Því ég hef verið í alls konar sjálfsvinnu og þannig hlutum sem er ótrúlega mikilvægt þegar fleira fólk tekur eftir manni,“ segir GKR.

Frum­sýning á Vísi: GKR og Nossan sleppa neikvæðninni„Það er mjög mikilvægt að vera með góðan kjarna í kringum sig. Hafa þroska og sjálfsöryggi til þess að láta ýmislegt leiða hjá sér. Hlutirnir verða stundum ruglaðir ef það er mikið í gangi tengt athygli eða hvað sem það er. Að því leytinu til þá líður mér eins og ég eigi mjög góða vini og ég veit vel hver ég er, þá er ekki erfitt fyrir mig að fara í sviðsljósið. Ég er ekki eins og ég var þegar ég var yngri. Mér finnst það ekki eins spennandi. Mig langar bara í sviðsljósið til að geta haldið áfram að gera list.“

GKR á útgáfutónleikum plötunnar.Þorri Líndal

Búsettur erlendis

GKR hefur búið í Bergen í Noregi síðustu þrjú ár og platan að miklu leyti unnin þar. Hann segir borgina vera algjöran draum. 

„Það er geggjað að taka sig út úr Íslandi. Ísland er eins og alls staðar í öllum umhverfum, þá myndast búbbla og það er gaman að fara út úr þeirri kúlu og horfa á þá kúlu annars staðar frá. Upplifa nýja menningu þó að Bergen sé svipað Íslandi að mörgu leyti,“ segir GKR.

Fjöldi fólks sem kemur að plötunni

Hann kom ekki einn að verkinu heldur fékk hann aðstoð hinna ýmsu tónlistarmanna við verkið, bæði frá Íslandi og Noregi. 

„Á Íslandi þá eru þetta Magnús Jóhann, Starri Snær, Marteinn Hjartarson, Tatjana, Bergur Einar. Hann er með trommur. Alfreð Jóhann og Kári Guðmundsson. Og svo í Noregi, þar eru tveir svona aðal framleiðendur með mér sem framleiða fjögur af sex lögum. Það er Jerry Folk og Hanz, svo er gæi sem heitir Bearson. Svo er ég með bakraddir frá listakonu sem heitir Iris og er frá Bergen,“ segir GKR.

GKR ætlar sér ekki að hverfa aftur af sjónarsviðinu.Viktor Steinar

Hann segir GKR vera kominn til vera og hann ætlar sér ekki að hverfa strax af sjónarsviðinu. 

„Það er mitt markmið og ég held að mér hafi liðið sem verst þegar ég reyndi hvað minnst að vera að skapa. Og mér líður best þegar ég er að reyna að skapa sem mest. Þannig ég dýrka að skapa og mitt markmið er að halda því áfram,“ segir GKR.


Tengdar fréttir

Frum­sýning á Vísi: GKR og Nossan sleppa neikvæðninni

Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR hefur gefið út nýtt tón­listar­mynd­band við lag sitt AHA AHA en í þetta skiptið er norski rapparinn Nossan með í för. Mynd­bandið er frum­sýnt á Vísi og má horfa á hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×