Lífið

Grindvíski bjarg­vætturinn kom ó­vænt og gladdi Eyjahjónin

Boði Logason skrifar
Ragnheiður Einarsdóttir, Margeir Jónsson og Guðjón Rögnvaldsson eru viðmælendur í Útkalli þessa vikuna. Þar lýsa þau ótrúlegum lífsraunum.
Ragnheiður Einarsdóttir, Margeir Jónsson og Guðjón Rögnvaldsson eru viðmælendur í Útkalli þessa vikuna. Þar lýsa þau ótrúlegum lífsraunum. Sara Rut

„Það er ekki hægt að fullþakka fyrir svona,“ segir Eyjakonan Ragnheiður Einarsdóttir hálfklökk í nýjasta Útkallsþættinum þegar hún faðmar Margeir Jónsson úr Grindavík sem var í hópi björgunarsveitarmanna sem björguðu lífi eiginmanns hennar, Guðjóns Rögnvaldssonar, og ellefu öðrum Eyjamönnum.

Klippa: Útkall - Gjarfar strandar

Mánuði eftir að eldgosið hófst í Vestmannaeyjum 23. janúar 1973 strandaði Gjafar VE 300 í foráttubrimi fyrir utan Grindavík. 

Skipverjarnir börðust upp á líf og dauða á meðan hugrakkir félagar í björgunarsveitinni reyndu að bjarga þeim – sumir þeirra lögðu eigið líf í hættu. Línu með björgunarstól var skotið út í Gjafar og skipbrotsmennirnir úr Eyjum síðan dregnir aðframkomnir í gegnum brimskaflana.

Falleg stund með djúpu þakklæti

Í þættinum kemur Margeir hjónunum á óvart í viðtali Óttars Sveinssonar við hjónin þegar hann gengur inn í stúdíóið. 

Stundin var falleg og tilfinningaþrungin – djúpt þakklæti og gleði en jafnframt blendnar tilfinningar, ekki síst hjá Margeiri í ljósi náttúruhamfaranna við Grindavík. 

Mánuði fyrir slysið hafði áhöfn Gjafars flutt mikinn fjölda fólks frá Vestmannaeyjum hina örlagaríku nótt þegar eldgosið hófst á Heimaey. 

Þá var Guðjón 22 ára vélstjóri en Ragnheiður var 18 ára unnusta hans – þau áttu 8 mánaða son. Margeir var 25 ára.

Alla þætti Útkalls má nálgast á sjónvarpssíðu Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×