Lífið

Iceland Airwaves kynnir lista­menn á 25 ára af­mæli há­tíðarinnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Það var stemmning í Hafnarhúsinu á Iceland Airwaves í fyrra. Hér syngja tónleikagestir með Daða Frey.
Það var stemmning í Hafnarhúsinu á Iceland Airwaves í fyrra. Hér syngja tónleikagestir með Daða Frey. Joana Fontinha

Shygirl, Bar italia, Charlotte Adigéry & Bolis Pupul, Joy (anonymous), Saya Gray, Klemens Hannigan og Inspector Spacetime eru á meðal þeirra sem koma fram á 25 ára afmælishátíð Iceland Airwaves í miðbæ Reykjavíkur 7. til 9. nóvember. 

Hátíðin fagnar aldarfjórðungsafmæli með holskeflu af spennandi, nýju og framsæknu tónlistarfólki frá Íslandi og öllum heimshornum. Dagskráin í ár verður ein sú flottasta hingað til.

„Við erum ótrúlega stolt af því að fagna 25 ára afmæli Iceland Airwaves og 25 árum af því að eiga þátt í fyrstu skrefum margra hæfileikaríkustu hljómsveita heims,“ segir Ísleifur Þórhallsson, hátíðarstjóri Iceland Airwaves. 

Tónleikagestur á Iceland Airwaves í fyrra.Iceland Airwaves

„Í gegnum árin höfum við séð fjölmörg bönd ná heimsathygli í kjölfar þess að koma fram á Iceland Airwaves. Það er heiður á hverju ári að fá að koma með heitasta tónlistarfólk veraldar til Reykjavíkur og einnig að fá að deila okkar einstaka íslenska tónlistarsamfélagi með heiminum."

Meðal þeirra sem kynnt eru í dag er Shygirl frá Suður-London sem er þekkt fyrir einstakt aldamótar klúbbapopp, hefur verið tilnefnd til Mercury-verðlaunanna 2023 og státar af lögum sem hafa verið gefin út í samstarfi við tónlistarfólk á borð við SOPHIE, Arca og FKA twigs.

Lo-fi grunge sveitin bar italia er þegar búin að sanka að sér dyggum hópi aðdáenda. 

Japansk-skoska listakonan Saya Gray búsett í Toronto er þekkt fyrir framúrstefnulegan og tilraunahenndan hljóðheim.

Iceland Airwaves ætlar að bjóða upp á heimsklassa raftónlist í ár og tilkynnir einnig í dag breska dúettinn Joy (Anonymous), sem og bandarísku synth-poppsveitina Magdalena Bay.

Belgíska dans dúóið Charlotte Adigéry and Bolis Pupul munu leika raftónlistar list sína en þau eru þekkt fyrir að taka á málum samtímans. 

Einnig mun hústónlistarmúsíkantinn Anish Kumar leika fyrir dansi, en hann sem sækir innblástur víða að - allt frá Brendu Lee til hindí-kvikmyndatónlistar.

Iceland Airwaves segist í tilkynningu fagna að sjálfsögðu því besta sem íslensk tónlist hafi upp á að bjóða og tilkynnir nokkra ástsæla íslenska listamenn. Þar á meðal séu eitt besta live band Íslands, Inspector Spacetime, hip-hop dúettinn Úlfur Úlfur sem hafi á sínum 15 árum þróað hljóðheim langt út fyrir hefðbundið rapp. 

Aðrar íslenskar hljómsveitir sem kynntar eru í dag eru Klemens Hannigan – að mestu þekktur fyrir störf sín sem hluti af hljómsveitinni HATARI, og nýstirnið Róshildur sem vann Grapevine verðlaun í ár sem nýliði ársins.

Iceland Airwaves bókar á hverju ári samansafn af hljómsveitum af jöfnu kynjahlutfalli og hefur í gegnum samstarf sitt við Keychange gert það síðan árið 2019. Jafnrétti kynjanna er mikilvægur hluti af því sem hátíðin stendur fyrir og það tónlistarsamfélag sem hátíðin endurspeglar. Í tilkynningu segir að Iceland Airwaves hafi verið fyrsta tónlistarhátíð heims til að ná þessum árangri. Miðasala á hátíðina er hafin á heimasíðu hennar.


Tengdar fréttir

Fólkið á Airwaves: Á hátíðinni fyrir einskæra tilviljun

Tónlist ómar um miðborgina í tilefni af Iceland Airwaves sem lauk í dag. Reykjavík var því yfirfull af músíkelsku fólki frá öllum hornum heimsins um helgina og rakst blaðamaður á Bretann Sam sem mætti á hátíðina fyrir tilviljun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×