Lífið

Spilað á borð­spil á Hvols­velli alla helgina

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Hilmar Kári Hallbjörnsson hjá borðspil.is, sem stendur fyrir hátíðinni um helgina á Hvolsvelli. Sjálfur á hann 903 borðspil.
Hilmar Kári Hallbjörnsson hjá borðspil.is, sem stendur fyrir hátíðinni um helgina á Hvolsvelli. Sjálfur á hann 903 borðspil. Aðsend

Mikil stemming er á Hvolsvelli um helgina þegar borðspil eru annars vegar því þar er hópur fólks komin saman til að spila allskonar borðspil og njóta samverunnar við hvert annað.

Borðspilahátíðin, sem fer fram á Hótel Hvolsvelli hófst í gær og stendur fram á morgundaginn. Fimmtíu þyrstir spilaeinstaklingar eru á staðnum og spila stanslaust frá morgni til kvölds allskonar spil. Hilmar Kári Hallbjörnsson hjá borðspil.is stendur fyrir hátíðinni.

„Þetta er bara hugmynd, sem við fengum fyrir þremur árum síðan, ákváðum að láta vaða þá í miðju Covid og þetta er þriðja árið í röð, sem við höldum hátíðina,” segir Hilmar Kári.

Og hvers konar spil er verið að spila?

„Þetta eru mikið til hobbí spil og þetta eru mikið til spil í þyngri kantinum en samt er verið að spila allt frá „Catan og Ticket” og upp úr.”

Íslendingar hafa mjög gaman af því að spila borðspil og njóta um leið félagsskaparsins við hvert annað.Aðsend

Hilmar segir mikinn áhuga á borðspilum á Íslandi og að hann fari vaxandi með hverju ári en félagsskapurinn skipti þar höfuðmáli, að spila með skemmtilegu fólki, sé ótrúlega skemmtilegt og gefandi.

„Þetta er alveg rosalega stór og mikill heimur, miklu stærri en fólk gerir sér í raun og veru fyrir. Það eru gefin út á milli þrjú og fjögur þúsund spill á hverju ári. Þetta er alveg ótrúlegur heimur og eins og ég segi, ég byrjaði og datt inn í þetta hobbí árið 2018 og átti þá þrjú spil og var svona að prófa að dýfa stóru tánni ofan í þetta og núna á ég 903 spil,” segir Hilmar Kári um leið og hann hvetur áhugasama að reka inn nefið á Hótel Hvolsvöll um helgina og sjá þátttakendur spila á borðspilahátíð helgarinnar.

Mikil og góð stemming er á Hvolsvelli þar sem um 50 þátttakendur hátíðarinnar skemmta sér við að spila allskonar borðspil.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×