Lífið

Ljúffengar pítsur að hætti Ebbu Guð­nýjar

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ebba Guðný er þekkt fyrir að törfa fram hollar máltíðir fyrir alla fjölskylduna.
Ebba Guðný er þekkt fyrir að törfa fram hollar máltíðir fyrir alla fjölskylduna.

Ebba Guðný Guðmundsdóttir matgæðingur og heilsukokkur er snillingur í að útbúa holla og næringaríka rétti í eldhúsinu. Ebba deilir hér tveimur uppskriftum að ljúffengum pítsum í hollari kantinum fyrir helgina. 

Speltpítsa fyrir 2-3

Hráefni:

  • 160 g gróft lífrænt spelt
  • 1 msk gott pítsukrydd
  • 1 dl heitt vatn

Aðferð:

  • Hitið ofninn á 180 C° og blástur.
  • Blandið saman spelti og kryddi. 
  • Bætið vatni saman við, hrærið fyrst með skeið og svo með höndum. 
  • Hnoðið saman og búa til tvær kúlur. Notið fínt spelt til að fletja út tvær þunnar pítsur og baka hvora um sig við 180°C blástur í um fimm mínútur eða þangað til botninn er bakaður og þurr á að líta. 
  • Takið þá botninn út og setjið sósu, ost og álegg.
  • Setjið pítsuna aftur inn í ofninn og bakið þar til osturinn er gullinbrúnn.
  • Berið fram með hvítlauksolíu og klettasalati
Speltpítsan er einföld og gerlaus.Ebba Guðný.

Glútenlaus pítsa

„Í milljón og sjö ár eldaði ég næstum hvert einasta föstudagskvöld einfalda spelt pítsu úr grófu lífrænu spelti þangað til einn daginn þoldi ég glúten ekki lengur,“ segir Ebba sem færði sig yfir í glútenlaust mjöl. 

„Eftir að hafa svo bakað bæði spelt pítsu og glútenlausa pítsu hvert einasta föstudagskvöld í nokkur ár kom ég að máli við Kaju hjá Kaja Organics og við ákváðum að búa til lífræna glútenlausa pítsu úr vönduðu hráefni sem færi vel í maga.“

Glútenlaus pítsa að hætti Ebbu Guðnýjar.Ebba Guðný

Hugmynd að áleggi: 

  • Sósa: Tómatsósa og tómatpúrra til helminga. Rautt pestó passar líka vel með því.
  • Mozzarella ostur
  • Bakað grænmeti
  • Rjómaostur
  • Döðlur 
  • Ólífur
  • Rauðlaukur

Bakað grænmeti: 

  • Þvoið grænmetið og afhýðið ef þarf. 
  • Skerið í þunnar sneiðar, penslið með ólífuolíu, kryddið með salti og pipar og bakið í um 15-20 mínútur við 180°C blástur.

Aðferð:

  • Stillið ofninn á 180 °C og blástur.
  • Til þess að fá botninn sérstaklega stökkan er gott að Kveikja á ofninum, setja botninn á grind og stinga honum inn í ofninn í um tíu mínútur.
  • Takið botninn út og bætið sósu, osti og áleggi á.
  • Setjið pítsuna aftur inn í ofn í um það bil tíu mínútur eða þangað til að osturinn er orðin gullinbrúnn.

Hvítlauksolía 

  • Pressið hvítlauk í krukku og bætið kaldpressaðri ólífuolíu út á. 
  • Ólían geymist í um það bil þrjár vikur í krukku með loki í kæli.
Olían geymist í kæli í allt að þrjár vikur.Ebba Guðný








Fleiri fréttir

Sjá meira


×