Matur

Ljúffengur fiskréttur að hætti Hrefnu Sætran

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hrefna Rósa Sætran eigandi Grillmarkaðsins, Fiskmarkaðsins, Uppi Bar og Skúla Craftbar deilir ljúffengri fiskuppskrift.
Hrefna Rósa Sætran eigandi Grillmarkaðsins, Fiskmarkaðsins, Uppi Bar og Skúla Craftbar deilir ljúffengri fiskuppskrift. Vísir/Vilhelm

Ofurkokkurinn Hrefna Sætran segir að hvítur fiskur sé ótrúlegt hráefni sem maður ætti að borða eins oft og maður getur. Hún deilir hér uppskrift af skotheldum fiskrétti. 

Hrefna birti uppskriftina fyrst á Instagram í dag þar sem hún skrifar meðal annars: 

„Hvítur fiskur er ótrúlegt hráefni. Þorskur, ýsa, langa, steinbítur, rauðspretta, smálúða sem dæmi. Svo mikið magn af próteini og nánast ekkert annað og svo mikið gott hægt að gera. Maður ætti að borða hvítan fisk eins oft og maður getur. 

Ég bakaði steinseljurót og blaðlauk með fisknum því ég átti það til en það er hægt að baka það grænmeti sem maður vill. Gulrætur, sætar kartöflur, brokkolí, kartöflur sem dæmi.“

Hér má finna uppskrift Hrefnu að þorski með möndluhjúp fyrir fjóra:

„1 stk steinseljurót

1 stk blaðlaukur

Olía

Salt og pipar

Aðferð: Hitaðu ofninn upp í 200°c. Skrældu steinseljurótina og skerðu hana í kubba. Skerðu svo blaðlaukinn niður líka. Settu þetta í skál, helltu olíu yfir og kryddaðu með salti og pipar. Settu smjörpappír á ofnskúffu og dreyfðu grænmetinu yfir hana. Eldaðu grænmetið í 20 mínútur og undirbúðu fiskinn á meðan.

600 g þorskhnakkar

3 msk ólífuolía

2 msk sítrónusafi

2 hvítlauksrif, fínt söxuð

1 lúka fersk steinselja, fínt söxuð

60 g hakkaðar möndlur

1 msk papriku duft

Salt og pipar

Skerðu fiskinn niður í bita. Þerraðu hann vel með eldhúspappír. Settu allt hitt hráefnið saman í skál og blandaðu saman. Taktu grænmetið út úr ofninum og færðu það á annan helminginn af ofnskúffunni. Raðaðu svo fiskinum á hinn helminginn og kryddaðu hann með salti og pipar. 

Settu svo möndluhjúpinn ofan á fiskbitana með höndunum og mótaðu hann til. Bakaðu áfram í 10-12 mínútur (fer eftir því hversu þykkur fiskurinn er). Ef þú ert ekki viss á því hvort fiskurinn sé tilbúinn þá getur þú bara slökkt á ofninum og leyft honum að dóla aðeins áfram inni.

Ég gerði svo vinaigrette til að hafa með. Þessi dressing passar svakalega vel með fisknum og grænmetinu og svo var ég líka með salat með.

2 msk balsamic edik

2 msk hunang

1 msk Dijon sinnep

100-150 ml ólífuolía

Pískaðu ediki, hunangi og sinnepi saman í skál. Helltu svo olíunni saman við í mjórri bunu og pískaðu áfram saman.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×