Fótbolti

Mourinho rekinn frá Roma

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jose Mourinho hefur verið þjálfari AS Roma frá árinu 2021.
Jose Mourinho hefur verið þjálfari AS Roma frá árinu 2021. Getty/Jonathan Moscrop

Portúgalski knattspyrnustjórinn Jose Mourinho hefur stýrt liði Roma í síðasta skiptið.

Ítalska félagið tilkynnti það á miðlum sínum í morgun að Mourinho væri hættur sem þjálfari liðsins frá og með deginum í dag. Hann og allt starfsliðið hans lætur af störfum.

Það hefur oft mikið gengið á hjá Portúgalanum í Róm og hann fékk á dögunum rautt spjald í tveimur leikjum í röð vegna mótmæla við dómara.

Liðið er í níunda sæti ítölsku deildarinnar, 22 stigum frá toppsætinu en bara fimm stigum frá Meistaradeildarsæti.

Mourinho vann Sambandsdeildin með Roma vorið 2022 sem var fyrsti titil félagsins í Evrópu síðan 1961. Hann fór líka með Roma liðið alla leið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í fyrra þar sem liðið tapaði fyrir Sevilla í vítakeppni.

Hinn sextugi Mourinho tók við Roma árið 2021 eftir að hafa stýrt Chelsea, Manchester United og Tottenham á árunum 2013 til 2021.

Bestum árangri náði Mourinho með Porto (2002-04), Chelsea (2004-07) og Internazionale (2008-10) en þaðan fór hann til Real Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×