Fótbolti

Þrjár vítaspyrnur í markasúpu Inter og Monza

Siggeir Ævarsson skrifar
Lautaro Martinez og Hakan Çalhanoğlu voru báðir á skotskónum í dag
Lautaro Martinez og Hakan Çalhanoğlu voru báðir á skotskónum í dag EPA-EFE/MATTEO BAZZI

Það virðist fátt fá stöðvað velgengni Inter Milan í Seríu A á Ítalíu þessa dagana en liðið vann yfirburðasigur á Monza á útivelli í kvöld, 1-5, en þrjú af sex mörkum kvöldsins komu úr vítaspyrnum.

Gestirnir frá Mílanó höfðu töluverða yfirburði sóknarlega í kvöld og þrátt fyrir að vera minna með boltann skapaði liðið sér töluvert fleiri færi og skoraði miklu fleiri mörk en heimamönnum tókst að gera.

Hakan Çalhanoğlu kom Inter yfir úr víti á 12. mínútu og markahrókurinn Lautaro Martínez tvöfaldaði forskotið tveimur mínútum seinna. Matteo Pessina náði að minnka muninn fyrir hálfleik en markið var dæmt af eftir yfirferð í VAR-sjánni.

Çalhanoğlu var svo aftur á ferðinni á 60. mínútu og staðan orðin 0-3 og fyrrnefndur Pessina náði aftur að koma boltanum í markið skömmu síðar og fékk það mark að standa, enda kom það úr vítaspyrnu.

Þriðja vítaspyrnan var svo dæmd á 84. mínútu og þar sem Çalhanoğlu var farinn af velli fór Martínez á punktinn og skoraði. Martínez er langmarkahæsti leikmaðurinn deildarinnar með 18 mörk en næstu menn á lista eru með níu mörk. Marcus Thuram gulltryggði svo sigur Inter með marki á 88. mínútu. 

Thuram er einmitt fimmti markahæsti maður deildarinnar með átta mörk, rétt eins og Albert Guðmundsson.

Inter eru á toppi Seríu A með 51 stig en Juventus er í öðru sæti með 46 og eiga leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×