Enski boltinn

Sam­herji Alberts nálgast Tottenham

Dagur Lárusson skrifar
Dragusin skoraði gegn Inter nú á dögunum.
Dragusin skoraði gegn Inter nú á dögunum. Vísir/getty

Rúmenski varnarmaður Genoa og samherji Alberts Guðmundssonar, Radu Dragusin, nálgast félagsskipti til Tottenham.

Það er ítalski fréttamaðurinn, Fabrizio Romano, sem greinir frá þessu en félögin hafa verið í viðræðum í nokkra daga.

Romano segir að viðræður liðanna séu komnar á lokastig og því má búast við samkomulagi milli liðanna á næstu dögum en leikmaðurinn sjálfur hefur náð samkomulagi við Tottenham.

Tottenham er að byrja janúargluggann með látum en í gær var það staðfest að þýski framherjinn, Timo Werner, sé á leið til félagsins á láni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×