Fótbolti

Góð endur­koma tryggði Roma í næstu um­ferð

Smári Jökull Jónsson skrifar
Markaskorararnir Romelu Lukaku og Paolo Dybala fagna marki þess fyrrnefnda í kvöld.
Markaskorararnir Romelu Lukaku og Paolo Dybala fagna marki þess fyrrnefnda í kvöld. Vísir/Getty

Roma er komið áfram í ítalska bikarnum í knattspyrnu eftir endurkomu sigur á Cremonese í kvöld.

Leikurinn var hluti af 16-liða úrslitum ítalska bikarsins og fór hann fram á heimavelli Roma í höfuðborg Ítalíu. Gestirnir frá Cremonese náðu forystunni á 37. mínútu með marki Frank Tsadjout en liðið leikur í næst efstu deild á meðan Roma er í 7. sæti Serie A.

Staðan í hálfleik var 1-0 og hélst þannig lengi vel í síðari hálfleiknum. Það var ekki fyrr en á 77. mínútu sem Romelo Lukaku jafnaði metin og Paolo Dybala kom heimamönnum síðan í 2-1 úr vítaspyrnu á 85. mínútu.

Það urðu lokatölur leiksins og Roma því komið áfram í 8-liða úrslit bikarsins. Fyrr í dag vann Atalanta 3-1 sigur á Sassuolo og tryggði sér einnig sæti áfram og þá mætir Juventus liði Salernitana á morgun í síðasta leik 16-liða úrslita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×