Fótbolti

AC Milan örugg­lega í átta liða úr­slit

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
AC Milan tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Coppa Italia í kvöld.
AC Milan tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Coppa Italia í kvöld. Vísir/Getty

AC Milan tryggði sér sæti í átta liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar, Coppa Italia, með öruggum 4-1 sigri gegn Cagliari í kvöld.

Luka Jovic kom heimamönnum í forystu með marki á 29. mínútu eftir stoðsendingu frá Theo Hernandez áður en hann tvöfaldaði forystu liðsins stuttu fyrir hálfleikshlé, aftur eftir stoðsendingu frá Hernandez.

Chaka Traore skoraði svo þriðja mark heimamanna snemma í síðari hálfleik, en Paulo Azzi klóraði í bakkann fyrir gestina í Cagliari þegar um tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Veik von gestanna um endurkomu varð þó að engu á annarri mínútu uppbótartíma þegar Rafael Leao skoraði fjórða mark AC Milan og tryggði liðinu öruggan 4-1 sigur.

AC Milan er þar með á leið í átta liða úrslit ítölsku bikarkeppninnar, en Cagliari er úr leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×