Lífið

Svín með jólasveinahúfu og jóla­skraut

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Sandra Kosiak svínahirðir í Laxárdal með grís, sem er með jólaskraut.
Sandra Kosiak svínahirðir í Laxárdal með grís, sem er með jólaskraut. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Svín á sveitabæ á Suðurlandi hafa notið jólahátíðarinnar ekki síður en mannfólkið, því þau hafa fengið jólaskraut í stíurnar sínar og jólasveinahúfan er á sínum stað á þeim.

Hér erum við að tala um svínin á svínabúinu Laxárdal í Skeiða og Gnúpverjahreppi þar sem eru um 200 gyltur. Til að lífga upp á jólastemminguna hefur jólaskrauti verið komið fyrir í nokkrum stíum og svínin fá meira að segja jólasveinahúfu þegar svo háttar til. 

Heiðurinn af þessu á svínahirðir búsins, Sandra frá Póllandi, sem hefur búið á Íslandi í sjö ár og elskar fátt meira en svínin í Laxárdal.

„Grísirnir hafa sérstaklega gaman af því að leika sér með jólakúlurnar og svo fá gylturnar jólahúfur og það er allskonar jólastemming í gangi,” segir Sandra.

Sandra segir svín mjög skemmtileg.

„Já þau eru öll mjög krúttleg og falleg og þeim finnst gaman að leika sér og að fá knús frá mér. Lyktin af grísunum er líka ótrúlega góð.”

Svínin fá líka að vera með jólasveinahúfu.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sandra með mikið af húðflúrum en það er þó ekkert flúr af svíni en stendur til að bæta úr því eða?

„Já, já, ég ætla að bæta úr því í maí því þá ætla ég að fá mér svínatattú“, segir hún hlæjandi.

Það er ekki hægt að kveðja svínin í Laxárdal án þess að heilsa upp á göltinn Brand, sem er 350 kíló og uppáhalds göltur búsins enda fær hann reglulega að vera með jólasveinahúfuna. Brandur er einstaklega gæfur og finnst fátt betra en að láta klappa og klóra sér.

Björgvin Þór Harðarson, svínabóndi í Laxárdal ásamt Brandi, sem er um 350 kíló.Magnús Hlynur Hreiðarsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×