Lífið

Katrín og Þor­gerður sendu jólakveðju klæddar leðri

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Katrín og Þorgerður Ása virðast afar lukkulegar með hvor aðra.
Katrín og Þorgerður Ása virðast afar lukkulegar með hvor aðra.

Katrín Oddsdóttir lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands og Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir, tónlistar- og útvarpskona, birtu skemmtilega jólakveðju á samfélagsmiðlinum Instagram. 

„Leður&Lagfæringar ehf óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með þakklæti fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða,“ segir í færslu kærustuparsins sem klæddist leðursmekkbuxum.

Katrín hefur starfað fyrir Öryrkjabandalagið undanfarin ár og sinnt kennslu við Háskólann í Reykjavík. Katrín á tvö börn úr fyrra hjónabandi. 

Þorgerður Ása er vísnasöngkona sem gaf út sína fyrstu plötu árið 2020, Í rauðum loga. 


Tengdar fréttir

Katrín og Kristín hvor í sína áttina eftir sextán ára hjónaband

Katrín Oddsdóttir, lögmaður og baráttukona fyrir réttindum fatlaðs fólks og flóttamanna, og Kristín Eysteinsdóttir, leikstjóri og fyrrverandi Borgarleikhússtjóri, eru skildar að skiptum eftir sextán ára hjónaband. Þær hafa um árabil verið eitt glæsilegasta par landsins.

Ekki þurr þráður í brúðkaupi Lóu Pind og Jónasar

„Dagurinn var gjörsamlega fullkominn,“ segir sjónvarpskonan og hin nýgifta Lóa Pind sem giftist Jónasi Valdimarssyni við hátíðlega og fjöruga athöfn í Iðnó síðastliðið laugardagskvöld, þann 11.11.23. Gestir felldu gleðitár og var dansað langt fram eftir kvöldi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×