Brösugir Börsungar áttu í vand­ræðum með botnliðið

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Hetja Barcelona í kvöld, Sergi Roberto, fagnar með fyrsta markaskoraranum Raphinha.
Hetja Barcelona í kvöld, Sergi Roberto, fagnar með fyrsta markaskoraranum Raphinha. EPA-EFE/Enric Fontcuberta

Barcelona vann 3-2 á heimavelli gegn Almería, neðsta liði spænsku úrvalsdeildarinnar. Mörkin komu frá hægri væng Börsunga, kantmaðurinn Raphinha skoraði fyrra markið og lagði annað markið svo upp á bakvörðinn Sergi Roberto, sem var aftur á ferðinni í sigurmarkinu en þá eftir undirbúning Robert Lewandowski.

Barcelona átti dagana sjö sannarlega ekki sæla í síðustu viku. Þeir drógust aftur úr titilbaráttunni með 4-2 tapi gegn Girona, ferðuðust svo til Belgíu í miðri viku og lágu þar 3-2 fyrir heimamönnum Royal Antwerp í lokaumferð Meistaradeildarinnar. Vikan endaði svo á 1-1 jafntefli gegn Valencia á meðan liðin þrjú fyrir ofan þá unnu öll sína leiki.

Orðrómar heyrðust í slúðurblöðum Katalóníu að ósætti væri milli forseta Barcelona og þjálfara liðsins en forsetinn blés fljótt á þær sögusagnir.

Þessi leikur kom því á frábærum tíma fyrir Börsunga sem höfðu verið í smá brekku. Almería hefur verið slakasta lið deilarinnar á þessu tímabili, með aðeins 5 stig eftir 18 leiki, veiðin var sýnd en sannarlega ekki gefin.

Raphinha opnaði markareikninginn á 33. mínútu, Léo Baptistao jafnaði svo metin fyrir gestina rétt fyrir háfleikslok. Þrátt fyrir mikla yfirburði Barcelona stóð Almería vel í þeim að mestu leyti, en Barcelona nýtti sér veikleika þeirra vel og herjuðu upp hægri kantinn. 

Sergi Roberto kom Börsungum aftur yfir á 60. mínútu, það dugði þó ekki til því Edgar González jafnaði metin skömmu síðar eftir mistök í varnarleik Barcelona. Sergi Roberto setti svo sitt annað mark og sigurmark leiksins á 83. mínútu, lokatölur 3-2.

Barcelona lyfti sér upp í 3. sæti deildarinnar með þessum sigri, en hefur spilað einum leik fleiri en hin liðin í efstu fjórum sætunum.


Tengdar fréttir

Sóknarleikur Barcelona í molum

Barcelona lék sinn þriðja deildarleik í röð án sigurs í gær þegar liðið gerði jafntefli við Valencia á útivelli. Framherjar Barcelona virðast heillum horfnir þessa dagana.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira