Lífið

Júródansari Little Big er látinn

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Dmitry Krasilov er látinn.
Dmitry Krasilov er látinn. Skjáskot

Rússneski dansarinn Dmitry Krasilov, betur þekktur undir listamannsnafninu Pukhlyash, er látinn. Krsailov var 29 ára gamall og er hvað þekktastur hér á landi fyrir að hafa dansað í atriði rússnesku sveitarinnar Little Big í Eurovision árið 2020. 

Fréttir af andlátinu dreifðust manna á milli á spjallrásinni 112 á Telegram, sem mikið er notuð meðal Rússa. Talið er að Krasilov hafi veikst á leið heim frá vinnu en hann fannst látinn í íbúð sinni í gær. Orsök andlátsins er ekki kunn en ýjað hefur verið að því að Krasilov hafi glímt við hjartasjúkóm. 

Krasilov hefur verið áberandi í listasenunni í Rússlandi og tekið þátt í uppsetningu sjónvarps- og vefþátta. Hann var leikari og dansari og er hvað þekktastur í Vestur-Evrópu fyrir að hafa dansað  við Uno, lag Little Big í Eurovision eins og áður segir. 

Sveitin minntist Krasilov á samfélagsmiðlum í dag og sendi ættingjum hans og vinum samúðarkveðjur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×