Lífið

Þreytt á sím­tölum frá glorhungruðu börnunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrefna þykir einn besti kokkur landsins.
Hrefna þykir einn besti kokkur landsins.

Verðlaunakokkurinn Hrefna Rósa Sætran var orðin þreytt á að fá símtöl í vinnuna frá krökkunum sínum þar sem þau kvörtuðu yfir að enginn matur væri til á heimilinu og þau væru glorhungruð.

Svo hún ákvað að semja kokkabók fyrir krakka á öllum aldri til þess að þau lærðu að búa til rétti og setja saman hráefnið sem alltaf er til í eldhúsinu hjá þeim.

Vala Matt fór og hitti Hrefnu og krakkana hennar í fallega eldhúsinu hennar og lærði þar til dæmis að búa til ótrúlega fljótlega og góða pizzu. 

Útkomuna mátti sjá í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi. 

Hér að neðan má sjá brot úr þættinum en áskrifendur geta séð það í heild sinni á Stöð 2+ og í frelsiskerfi Stöðvar 2.

Klippa: Þreytt á símtölum frá glorhungruðum börnum sínum og gaf því út bók





Fleiri fréttir

Sjá meira


×