Lífið

Eftir­lætis pönnu­kökur allra á heimilinu

Íris Hauksdóttir skrifar
Eva Brink ástríðukokkur deilir girnilegri pönnuköku uppskrift.
Eva Brink ástríðukokkur deilir girnilegri pönnuköku uppskrift.

Ástríðukokkurinn Eva Brink, deildi nýverið með fylgjendum sínum einfaldri og fljótlegri uppskrift af bananapönnukökum sem hún segir alltaf slá í gegn hjá fjölskyldunni.

Eva er menntaður verkfræðingur og starfar sem fjármálastjóri fiskiðnaðar hjá Marel. Samhliða því er hún mikill listakokkur og deilir gjarnan girnilegum uppskriftum sem henta öllum aldri og eru oft einfaldar í framkvæmd. 

Hráefnin eru sárafá sem þarf í uppskriftina en auðvelt er að toppa pönnukökurnar með fjölbreyttu meðlæti.aðsend

Að þessu sinni deilir Eva uppskrift af morgnuverð sem má að sjálfsögðu njóta hvaða tíma dags sem er og er í algjöru uppáhaldi hjá öllum fjölskyldumeðlimum heimilisins. 

Hráefnin sem til þarf eru ekki mörg því auðvelt að leggja uppskriftina á minnið ef til þess kemur. 


Að þessu sinni notar Eva epli og síróp til að bragðbæta pönnukökurnar. aðsend

Ofur einföldu bananapönnukökurnar

2 þroskaðir bananar

2 bollar fínt haframjöl

4 egg

1 tsk. lyftiduft

1/2 tsk. salt

dass af sírópi

Blandan sett í hrærivél og steikt upp úr smjöri eða olíu á meðal háum hita. Toppað með eplum, smjörsúkkulaði eða öðru meðlæti eftir smekk. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×