Vídeódansinn leggur Listagilið undir sig Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. nóvember 2023 13:22 Frá hátíðinni í fyrra. Boreal Fjórða útgáfa dansmyndahátíðarinnar Boreal hefst á föstudaginn og stendur yfir í tæpar tvær vikur. Hátíðin leggur undir sig hið alræmda Listagil á Akureyri á þessu tímabili.
Sýningar fara fram í Listasafninu á Akureyri, Deiglunni og Mjólkurbúðinni. Herlegheitin hefjast á föstudeginum með setningarathöfn og fyrstu sýningum í Ketilhúsi Listasafnsins á Akureyri. Boreal Screendance Festival miðar að eflingu danslista og margmiðlunar með sérstaka áherslu á alþjóðasamstarf. Í ár verða sýndar 36 dansmyndir og vídeódansverk vítt og breitt um Listagilið. Þessi útgáfa Boreal markar einnig fyrsta skiptið þar sem dansverk er flutt á sviði fyrir framan áhorfendur. Það kemur í hlut suður-kóreska listamannsinns Hoyoung Im sem flytur dansgjörningin EUPHORIA í Deiglunni fimmtudaginn 16. nóvember. Boreal stendur einnig fyrir samkomum og fögnuðum á sýningartímanum. Call of the Cranes eftir Vilmu Tihilä.Boreal Verkin sem sýnd verða í ár eru eftir listafólk frá 22 löndum og hefur dagskráin aldrei verið fjölbreyttari þegar litið er til fjölda listafólks, fjölbreytni verka og uppruna þeirra. „Mikið púður er lagt í umgjörð hátíðarinnar og að verkin sem tekin eru til sýningar séu sett fram við bestu mögulegu aðstæður hvað varðar hljóð og mynd. Sé miðað við aðsókn síðustu ára hentar Boreal jafnt heimafólki, aðfluttum sem og ferðamönnum enda alþjóðleg hátíð í anda. Allir gestir ættu þannig að geta fundið eitthvað við sitt hæfi enda fjölbreytileiki dansmyndanna gríðarlegur sem endurspeglar vel þann fjölda listafólks allsstaðar að úr heiminum sem tekur þátt,“ segir í tilkynningu. Dagskrá hátíðarinnar.Boreal Sérstaða verkefnisins er sögð gríðarleg enda eina hátíðin sinnar tegundar sem haldin er árlega hérlendis. Það er samtímadansarinn og danshöfundurinn Yuliana Palacios sem er stofnandi og verkefnastjóri Boeral. Yuliana er frá Mexíkó en fluttist til Íslands árið 2016 og hefur síðan þá látið að sér kveða í menningarlífinu hérlendis. Hefur hún ýmist sett upp sett upp sjálfstæð dans- og gjörningaverk eða unnið í samstarfi við annað listafólk auk þess að sinna kennslu. Síðustu ár hefur Yuliana æ meir fengist við vídeódans og er dansmyndahátíðin Boreal ein birtingarmynd þess. Boreal hlaut hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2021 sem veitt eru framúrskarandi menningarverkefnum á landsbyggðinni.
Akureyri Dans Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Lífið „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Tónlist Fjögurra ára rússíbanareið að baki Menning Spáir Ísrael sigri í Eurovision Lífið Fréttatía vikunnar: Eldgos, knattspyrna og rapparar Lífið Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon Tónlist „Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni“ Lífið „Þegar manni líður vel í eigin skinni skín það í gegn“ Tíska og hönnun „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Lífið Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana Lífið Fleiri fréttir „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fréttatía vikunnar: Eldgos, knattspyrna og rapparar „Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni“ Spáir Ísrael sigri í Eurovision „Það gekk ekki hvað henni leið illa“ Páfiðrildi við Krónuna í Skeifunni Bashar Murad endurgerir palestínskt lag föður síns Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Fékk morðhótanir og ætlar að leita réttar síns Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Bieber-hjónin eiga von á barni Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Tónlistarframleiðandinn Steve Albini látinn Backstreet-strákur kominn aftur til Íslands Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana „Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði Hafa komist að samkomulagi vegna andláta á Astroworld Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Náttúrulegar bótox-meðferðir án sprautunála „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Myndaveisla: Gleði og gæsahúð á forsýningu Sveitarómantíkur Raggi Bjarna þekkti ekki Friðrik Dór með nafni Friðrik Ómar kynnir stig Íslands í Eurovision Ian Gelder úr Game of Thrones látinn „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Svakalega erfitt en stórkostlegt Anníe Mist fór í keisaraskurð Sjá meira