Lífið

Nóvemberspá Siggu Kling: Ástin handan við hornið

Sigga Kling skrifar
meyjan

Elsku meyjan mín. Styrkur þinn er að tvíeflast. Að sjálfsögðu ertu líka búin að vera þreytt, en það er bara af því að þú ert að framkvæma og gera mikið.

 

  • Meyjan er frá 23. ágúst til 22. september.

Enginn er ánægður nema eftir gott dagsverk og það er svo ofsalega misjafnt hjá hverjum og einum hvað það þýðir. Tilfinningaleg líðan þín er að komast í svo gott lag. Þú ert að opna fyrir þitt góða tengslanet á ljóshraða. Tengt þessu neti er ástin fyrir allavegana þá sem eru á lausu og jafnvel hina líka. En þar sem að þér er gefið frjálst val í þessu lífi, þá er ákvörðunin alfarið þín. 

Það er eins og þú finnir eitthvað sem þú hafðir glatað eða mundir ekki að þú áttir. Þetta getur líka verið að þú fáir borgaða skuld sem þú bjóst ekki við eða eitthvað í þá áttina. Það er mikil rómantík og blessun yfir þessum mánuði – þú ert byrjuð að gera svo marga hluti eða ert að fara út í marga hluti sem að heila þig og blása betra lífi og orku inn í lífsandann þinn. 

Klippa: Nóvemberspá Siggu Kling - Meyjan

Það fylgir tímabilinu líka gleði og gæfa tengt fjölskyldumeðlimi eða vini, stolt og upphefð. Launahækkun eða nýtt verkefni sem gefur af sér peninga. En kæra meyja, mundu það að láta frá þér vissan part af því sem þú ert að fá til þín, til þeirrar persónu sem hefur hjálpað þér hvað mest, því þar gætu einhverjir erfiðleikar átt heima þessa stundina. 

Þessi manneskja í þínu lífi er þannig týpa að hún kvartar ekki alveg sama hvað á henni dynur, svo stattu þétt við hennar hlið. Það er hugmynd hjá mörgum í þessu merki að flytja sig til og jafnvel að skoða erlend lönd og athuga hvort einhverjir möguleikar liggi í því. 

Það er svo merkilegt þetta líf og það á það til að breytast á augabragði, svo vertu ánægð með það sem þú hefur þá alheimurinn þér meira gefur.

  • Manuela Ósk Harðardóttir, fyrrverandi fegurðardrottning, 29. ágúst
  • Cameron Diaz, leikkona, 30. ágúst
  • Árni Páll Árnason (Herra Hnetusmjör), rappari, 31. ágúst
  • Keanu Reeves, leikari, 2. september
  • Beyoncé Giselle Knowles-Carter, söngkona, 4. september
  • Beyoncé Knowles, söngkona, 4. september
  • Ari Eldjárn, grínisti, 5.september
  • Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður, 16. september
  • Annie Mist Þórisdóttir, crossfit stjarna, 18. september





Fleiri fréttir

Sjá meira


×