Lífið

Nóvemberspá Siggu Kling: Færð nýtt á­huga­mál

Sigga Kling skrifar
nautid

Elsku nautið mitt. Það er hægt að segja að þetta sé þinn mánuður. Það er þitt tungl sem blasir við í nóvember. Það eru svo miklar tilfinningar og viss átök sem að fólgin eru í þeirri orku.

  • Nautið er frá 20. apríl til 20. maí.

Passaðu það ofboðslega vel að láta ekki fjúka í þig þegar að einhverja vitleysu ber á borð því að það setur af stað „domino effect,“ það þýðir að allt mögulegt getur farið í þínar fínustu taugar eftir það. 

Svo að þú þarft að gefa þér þann kraft að segja STOPP við huga og tilfinningar. Þá hugsarðu kannski, „Hvernig fer ég að því?” Þú þarft að koma þér út úr aðstæðum og segja sem minnst, því þú hefur svo sannarlega tökin á svo mörgu á þessu blessaða tímabili og það mun koma þér á óvart hvað þú ert í raun sterkbyggður í þessum aðstæðum sem að mæta þér. 

Klippa: Nóvemberspá Siggu Kling - Nautið

Þessi mánuður verður þér til happs þó að þú haldir að hindranirnar eru of háar til að stökkva yfir þær þá er það ímyndun ein. 

Þú stendur svo sterkur í sjálfstæði, til dæmis í sambandi við ástina. Þú færð fullvissu um hvort þú ert að fara réttan eða rangan veg, því að plánetan þín Venus er að skjóta ástar örvum í kring um þig og það skemmtilega við þig er að sporðdrekinn er einnig með Venus og það tengist tvöfaldri ástríðu gagnvart því sem að þú vilt. 

Þú byrjar á nýju áhugamáli og ögrar sjálfum þér. Þetta gæti verið búið að gerast en þá er það bara áframhald og efling á þessu skemmtilega viðfangsefni.

Þú færð hrós og uppörvun og jafnvel verðlaun fyrir það sem þú ert að starfa eða gera, en það gæti einnig tengst starfi sem þú vinnur með börnum og unglingum eða þeim sem þurfa á þér að halda.

  • Elizabeth Alexandra Mary, fyrrum drottning Bretlands, 21. apríl
  • Halldór Kiljan Laxness, rithöfundur og ljóðskáld, 23. apríl
  • Gigi Hadid, fyrirsæta, 23. apríl
  • William Shakespeare, leikari, 26. apríl
  • Melissa Viviane Jefferson (Lizzo), söngkona, 27. apríl
  • Garðar Thór Cortes, óperusöngvari, 2. maí
  • Eliza Jean Reid, forsetafrú Íslands, 5. maí
  • Katrín Tanja Davíðsdóttir, crossfit stjarna, 10. maí
  • Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands, 14. maí





Fleiri fréttir

Sjá meira


×